Kiðjaberg 29, 805 Selfoss

120.000.000 kr.
  • Tegund Sumarhús
  • Stærð 160 m2
  • Herbergi 5
  • Stofur 3
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2006
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 84.530.000
  • Fasteignamat 77.550.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Glæsilegt og frábærlega vel staðsett sumarhús á stórri gróinni eignarlóð á Holtinu í Kiðjabergi. Örstutt á golfvöllinn hjá Golfklúbbi Kiðjabergs eftir golfbílaslóða. Gróin lóð í botnlanga og mikil veðursæld. Frábært útsýni yfir Hvítá, Oddgeirshóla og Arnarbæli.

Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson lögfr. og löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, [email protected] 

*** Smelltu hér til að sækja söluyfirlit *** 

Um er að ræða nánar tiltekið Kiðjaberg 29, sumarhús á lóð nr 29 í Kiðjabergi, 805 Selfossi, F2306794. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 160,4 fm. Sólskáli er óskráður en hann er um 18 fm. Heildarstærð er því í raun 178,4 fm. Húsið er byggt árið 2006 en golfbílskúrinn er byggður síðar eða árið 2014. Fasteignamat 2025 = 90.450.000 kr. Kostnaður vegna rafmagns hefur verið um 9.000 kr/mán, kostnaður vegna hita um 14.000 kr/mán og gjald í Félag lóðarhafa í Kiðjabergi er 52.650 kr á ári.

Eignin skiptist í anddyri, eldhús og borðstofu í alrými, setustofu og sólskála, sjónvarpsstofu, fjögur rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, snyrtingu og þvottahús. Golfbílskúr og geymsla. Stór og góður pallur er í kringum húsið með skjólveggjum. Margir útgangar eru út á pallinn, aðalinngangur um anddyri en auk þess er útgengt úr þvottahúsi, tveir útgangar úr sólskála, úr borðstofu, hjónaherbergi og úr baðherbergi. 

Sérsmíðaðar eikarinnréttingar eru í húsinu frá Trésmiðju Sigurðar B Ólafssonar í Mosfellsbæ. Gólfhiti er í öllu húsinu auk handklæðaofns á baðherbergi. Húsið er klætt cedrusvið, vandaðir harðviðargluggar og aluzink er á þaki. Húsið hefur fengið gott viðhald og lítur vel út. Frábær staðsetning í bontlanga, við autt svæði (Dýjakróka) og mjög gott útsýni. Örstutt frá golfvellinum, golfbílaslóði liggur frá botnlanganum upp á völl. 

Lóðin er 11.000 fm eignarlóð. Heimilt er samkvæmt gildandi deiliskipulagi að reisa allt að 330 fm hús á lóðinni miðað við hámarksnýtingarhlutfall 0,03. Eignin er kynt með gólfhita, hitaveita er á svæðinu, tekin inn í húsið 2017. Heitur pottur.  

Nánari lýsing eignar:
Eldhús er opið í alrými með sérsmíðaðri eikarinnréttingu með eldhúseyju og góðu vinnuplássi. Vönduð eldhústæki frá Siemens, uppþvottavél, bakarofn, spanhelluborð og háfur. Flísar á gólfi. 
Borðstofa er í hjarta hússins, björt og með aukinni lofthæð. Parket á gólfi. 
Setustofa er björt og með glugga í þrjár áttir. Parket á gólfi. Útgengt er á sólpallinn úr setustofu og einnig er gengið um setustofuna út í sólskála. 
Sólskáli er rúmgóður með tveimur útgöngum út á pallinn. Frábært útsýni er úr sólskálanum. ATH. skálinn er um 18 fm en hann er óskráður og ekki inni í birtum fermetrum.
Sjónvarpsstofa er einnig í alrými, parket á gólfi. 
Herbergi 1 er rúmgott hornherbergi með góðum sérsmíðuðum fataskápum. Parket á gólfi. Útgengt út á sólpallinn. 
Herbergi 2 er rúmgott með góðum sérsmíðuðum fataskápum. Parket á gólfi. 
Herbergi 3 er rúmgott með góðum sérsmíðuðum fataskápum. Parket á gólfi. 
Herbergi 4 er rúmgott hornherbergi með góðum sérsmíðuðum fataskápum. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er með stórri sérsmíðaðri eikarinnréttingu með skápum, skúffum og hillum og góðu borðplássi. Handlaug. Upphengt salerni, sturtuklefi. Handklæðaofn. Flísar í hólf og gólf. Opnanlegur gluggi og útgengi út á sólpall þar sem er heitur pottur.  
Snyrting er með snyrtilegri sérsmíðaðri eikarinnréttingu og handlaug. Upphengt salerni. Flísar á gólfi. Opnanlegur gluggi.
Anddyri er með góðum sérsmíðuðum fataskápum. Flísar á gólfi.  
Þvottahús er rúmgott með góðri sérsmíðaðri eikarinnréttingu. Flísar á gólfi. Lítið geymsluloft. Opnanlegur gluggi og útgengt er út á sólpall úr þvottahúsi.
Golfbílskúr er rúmgóður með opnanlegum gluggum, inngönguhurð og innkeyrsluhurð. Skúrinn er skráður 20,3 fm.
Geymsla er sambyggð golfbílskúrnum.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook