Kristnibraut 31, 113 Reykjavík (Grafarholt)

74.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 110 m2
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 2000
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 59.790.000
  • Fasteignamat 69.150.000
  • Áhvílandi 0
Opið hús: 23. september 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Kristnibraut 31, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 202. Eignin verður sýnd mánudaginn 23. september 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Eignamiðlun kynnir:

Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð við Kristnibraut 31 í Grafarholti. Eignin er vel staðsett innan hverfisins, björt með fallegu útsýni til vesturs. Birt stærð eignarinnar er 110,1 fm þar af 8,1 fm geymsla. Bílastæði með rafhleðslustöð í bílageymslu fylgir eigninni.

**Eignin er komin aftur á sölu þar sem tilboð féll á fyrirvara um sölu**


**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing
Gengið er inn í anddyrið sem er parketlagt og með forstofuskáp.
Á hægri hönd er þvottahús sem er innréttað með borðplötu, vask og efri skápum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með fataskáp. Parket á gólfi
Svefnherbergi III er með fataskáp. Parket á gólfi
Baðherbergi er með smekklegri innréttingu, vegghengdu salerni og baðkari. Flísalagt í hólf og gólf.
Eldhúsið er vel skipulagt með góðu skápaplássi og smekklegri innréttingu. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Parket á gólfi.
Stofan er parketlögð, rúmgóð og björt með fallegu útsýni og úr stofunni er gengið út á svalir sem snúa til vesturs með frábæru útsýni yfir borgina.

Framkvæmdir utanhúss 2023:
- Þak grunnað og málað
- Sléttir fletir útveggja málaðir
- Ytra byrði glugga málað
- Kíttað með gluggum að utanverðu

Um er að ræða vel skipulagða og smekklega eign á góðum fjölskylduvænum stað í Grafarholti. Stutt í alla helstu þjónustu s.s. leikskóla, grunnskóla, verslun og þjónustu.

Nánari upplýsingar veita:
Jenný Sif Ólafsdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 843 0087 / [email protected]
Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali, sími: 824 9093 / [email protected]

 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook