Eignamiðlun kynnir:
2ja herbergja íbúð á 1.hæð að Miklubraut 74 í 105 Reykjavík. Um er að ræða smekklega eign í fjölbýlishúsi sem hefur fengið gott viðhald. Íbúðin skiptist í forstofu, svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla 3,2 fm.**Sækja söluyfirlit**Nánari lýsing á eign:
Forstofa/hol er með hvítum skáp og flísum á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með hvítum speglafataskáp. Parket á gólfi.
Stofa er björt með glugga sem snýr út í garð. Parket á gólfi.
Baðherbergi er snyrtilegt með nýlegri sturtu og hvítri innréttingu. Gólf flísalögð og veggir einnig flísalagðir að hluta.
Eldhús er með hvítri horninnréttingu með ágætu skápaplássi og dökkri borðplötu, flísar á vegg milli efri og neðri skápa. Flísar á gólfi.
Þvottahús er í sameign í kjallara hússins auk 3,2 fm sérgeymslu.
Framkvæmdir að sögn seljanda:
2006: Suður- og vesturhliðar drenaðar.
2007: Skipt um þakjárn og pappa.
2014: Hús endursteinað.
2013-2023: Skipt um þá glugga sem þurfa þykir.
2021: Stigagangur málaður og teppalagður og rafmagn yfirfarið.
2021: Baðkari skipt út fyrir sturtuklefa.
Um er að ræða vel staðsetta eign þar sem stutt er í almenningssamgöngur og alla helstu þjónustu. Verslanir, grunnskóli, leikskóli og heilsugæsla í göngufæri.Nánari upplýsingar veitir:
Jenný Sif Ólafsdóttir löggiltur fasteignasali, sími:
843 0087 /
[email protected]***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook