Maríubaugur 39, 113 Reykjavík (Grafarholt)

126.900.000 kr.
  • Tegund Raðhús
  • Stærð 148 m2
  • Herbergi 4
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2001
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 71.350.000
  • Fasteignamat 108.500.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

**Bókið einkaskoðun hjá Brynjari í síma 896 1168 eða [email protected]**

Mjög vel skipulagt samtals 148,7m² endaraðhús á einni hæð ásamt bílskúr. Vel staðsett hús í Grafarholti með suðurgarði. Mikilli lofthæð er í stærstum hluta hússins. Gluggar á móti suðri og á gafli til vesturs veita góðri birtu inn í alrýmið.


Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 148,7m², flatarmál íbúðarrýmis er 120,7m² og flatarmál geymslu er 28m². Fyrirhugað fasteignamat 2025 er kr 110.250.000.-
Eignin skiptist í stofu, eldhús, tvö til þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

Nánari lýsing:
Komið inn í flísalagt anddyri. Gott skápapláss er við anddyri.
Opið og bjart alrými er vel skipulagt með eldhúsi með glugga í vesturátt (á enda gafli), borðstofu og góðri stofu með stórum gluggum mót suðri.
Eldhús er með dökkri viðar innréttingu með góðu skápaplássi, eyja og notalegur borðkrókur er við glugga mót suðri.
Stofan er opin og björt, þar er mikil lofthæð sem setur sterkan svip á rýmið. Stórir gluggar mót suðri með tvöfaldri hurð opnast út í skjólsæla verönd með palli og skjólvegg. 
Herbergin eru tvö, fataskápar í þeim báðum. Mikil lofthæð er í stærra herberginu.
Innaf stofu er sjónvarpstofa sem auðvelt væri að loka og hafa sem þriðja herbergið.
Rúmgott baðherbergi með innréttingu um handlaug og sturtu. Flísar á gólfi. 
Þvottahús er innaf anddyri, flísar á gólfi.

Gólfefni:
Flísar á anddyri, baðherbergi, þvottahúsi og bílskúr.
Parket á stofu, borðstofu, eldhúsi og herbergjum.

Bílskúr er við enda raðhúsalengjunnar innkeyrsluhurð (fjarstýrð opnun), heitt og kalt vatn, flísar á gólfi. Bílastæði við húsið.

Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook