Hjallavegur 40 / m byggingaráformum 0, 104 Reykjavík (Vogar)

99.500.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 85 m2
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 1946
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 55.350.000
  • Fasteignamat 66.650.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

**Ekki verður haldið opið hús heldur áhugasömum sýnd eignin í einkaskoðun**

Samþykkt byggingaráform að 102,3 m² húsi á baklóð Hjallavegs 40 ásamt þriggja herbergja samtals 85,5 m² íbúð á jarðhæð með bílskúr sem breytt hefur verið í stúdíóíbúð. Góðar leigutekjur.


Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 85,5 m², flatarmál íbúðarrýmis er 51,9 m² og bílskúr er 33,6 m².
Íbúðin skiptist í anddyri/hol, baðherbergi, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, sér geymslu og sameiginlegt þvottahús með stúdíóíbúð. Sameiginlegur inngangur er með efri hæðinni.

Lýsing eignar:  
Frá sameign er gengið inn í sér geymslu. Komið er inn í parketlagt anddyri/hol. Til vinstri er flísalagt baðherbergi, með sturtu og opnanlegum glugga. Næst til vinstri er parketlagt herbergi. Til hægri er nýlegt eldhús með litlum borðkrók. Beint áfram frá holi er björt og parketlögð stofa, með gluggum á tvo vegu. Inn af stofu er hjónaherbergið. Gólfefni eru nýleg. 
Að innan hefur eignin verið töluvert endurnýjuð og má þar nefna gólfefni, eldhúsinnréttingu og baðherbergi. Búið er að taka húsið mikið í gegn. Allar vatnslagnir, frárennsli, dren og rafmagn. Einnig er búið að endurnýja glugga, gler, þak að hluta og þakjárn o.fl.

Bílskúrinn hefur verið endurnýjaður frá grunni. Þar er nú björt og falleg fullbúin stúdíóíbúð. Í alrými er fullbúið eldhús og stofa. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi og vegghengt salerni og innréttingu undir handlaug. Gólfhiti er í íbúðinni. Stúdíóbúðin deilir þvottahúsi með íbúðinni. StúdíóÍbúðin er í leigu og leigufjárhæð kr. 195.000,-

Samþykkt byggingaráform að litlu húsi á baklóð Hjallavegs 40

Um er að ræða húsbyggingu þá sem sýnd er á meðfylgjandi teikningum. Húsið fær sér bílastæði á lóð og mjög skjólsælan suður og vesturgarð.

Eina tenging húsanna verður forstofa byggingarinnar sem tengist vesturhlið gamla hússins. Það er einn eigandi að Hjallavegi og bæði möguleiki á að kaupa heildareignina (en í gamla húsinu eru tvær uppgerðar 3ja herbergja íbúðir sem báðar eru í útleigu) og eða fá forkaupsrétt að þeim til síðari kaupa. Nýbyggingin og allar breytingar á deiliskipulagi eru unnar af Nordic arkitektum og hafa teikningar verið samþykktar af byggingaryfirvöldum. Núverandi áform gera ráð fyrir að nýbyggingin verði út timbri og klædd með álklæðningu.

Breytingar á framhúsi
Breytingar á inngöngum og þvottahúsi 1. hæðar þar sem báðar hæðir í framhúsi fá sér inngang ásamt því að 1. hæðin fær útgang úr stofu út í garð, mun auka mjög gæði og verðgildi íbúða í framhúsi. Með þessum breytingum verður engin sameign sem hefur mikla þýðingu fyrir afkomu af leigu og almennan rekstrarkostnað.

Hönnun
Mjög hefur verið vandað til hönnunar og teikninga af einni bestu arkitektastofu landsins. Bæði eigendur og hönnuðir hafa lagt mikla vinnu í að nýta byggingarréttinn sem best. Auk þess mun kostnaður við bygginguna verða hagfelldur og byggingartími stuttur þar sem heimilt er að byggja úr timbri og því þarf hvorki stóra krana né önnur þung byggingartæki til framkvæmda. Nýja húsið fær sér garð sem mun verða mjög skjólsæll. Það er einstaklega fallegt og fellur vel að bæði framhúsinu og öðru umhverfi. Sér bílastæði verður út frá götustíg upp að
nýja húsinu nr. 42. Auk þess mun innkeyrsla að framhúsinu fylgja neðri hæð hússins.

Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook