Baldursgata 22, 101 Reykjavík (Miðbær)

99.800.000 kr.
  • Tegund Raðhús
  • Stærð 94 m2
  • Herbergi 4
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1933
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 42.150.000
  • Fasteignamat 73.050.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Sérbýli í Þingholtunum í Reykjavík. Fallegt og mikið endurnýjað hús á tveim hæðum. Hér er tækifæri til þess að eignast fasteign í hjarta borgarinnar með góða leigumöguleika.

Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 94,9fm. húsið er skráð hjá HMS sem íbúðareign en er í raun raðhús.
Á neðri hæð er forstofa, stofa, borðstofa, eldhús og baðherbergi með sturtu. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og annað baðherbergi með sturtu. Húsið var mikið endurnýjað 2015/2016 m.a. settur gólfhiti og flísar á neðri hæð, nýtt eldhús og baðherbergi endurnýjuð.

Nánari lýsing:
Komið er inn um sér inngang í flísalagða forstofu. Beint áfram er eldhús en til vinstri eru stofan með gluggum til norðvesturs (að Baldursgötu) og til suðausturs (að verönd). Eldhúsið er með nýlegri innréttingu, innbyggð uppþvottavél og stein á borði. Innaf eldhúsinu er nýlega standsett baðherbergi en úr því er gengið beint út á timburverönd. Úr forstofu liggur stigi upp á efri hæðina og er komið upp í hol. Innaf holinu er baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél, tvö herbergi sem eru bæði með kvistum og nýlega standsett. Baðherbergi er rúmgott, sturta og tengi fyrir þvottavél, gluggi til suðausturs. Útgengt er á litla verönd með heitum potti frá baðherbergi og borðstofu. Gólfhiti er á neðri hæð og ofnar á efri hæð.

Hægt er að kaupa mest af innbúinu ef óskað er.

Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook