Tryggvagata 21, 101 Reykjavík (Miðbær)

99.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 78 m2
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 2018
  • Lyfta
  • Brunabótamat 65.100.000
  • Fasteignamat 75.050.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Frábær 2ja herbergja íbúð á suðvesturhorni á 2. hæð með svölum og 54,7 fm verönd á Hafnartorgi í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning. 

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, [email protected] og Unnar Kjartansson löggiltur fasteignasali, sími 867-0968, [email protected]

*** Sækja söluyfirlit *** 


Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 208 við Tryggvagötu 21, 101 Reykjavík, F2363647. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 78,4 fm. Þar af er íbúðarrými skráð 71,5 fm og sérgeymsla er 6,9 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í alrými, svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Suðvestur svalir og 54,7 fm verönd eru út frá stofu. Sérgeymsla er í kjallara hússins. 

Anddyri er með góðu skápaplássi. Parket á gólfi. 
Eldhús er með vandaðri sprautulakkaðri innréttingu. Parket á gólfi. 
Stofa er rúmgóð og björt. Parket á gólfi. Útgengt er á svalir og verönd úr stofu. 
Svefnherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu og speglaskáp. Upphengt salerni. Walk-in sturta. Flísar í hólf og gólf. 
Sérgeymsla (6,9 fm) er í kjallara hússins. 
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara hússins. 

Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar en stofan var hönnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt sem vinnur í samstarfi með Fernando de Mendonca og öflugu teymi arkitekta frá öllum heimshornum. Byggingaraðili hússins er ÞG Verktakar ehf og Guðbjörg Magnúsdóttir sá um innanhússhönnun. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar og stendur íbúum Hafnartorgs til boða að leigja bílastæðakort samkvæmt gjaldskrá.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook