Eignamiðlun kynnir:
Fallegt 219 fm einbýlishús, með þremur íbúðum, á eftirsóttum stað í Árbænum. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er einbýlið skráð 188,2 fm og bílskúr 31,4 fm. Rótgróið og barnvænt hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svo sem skóla, leikskóla, íþróttamannvirki, hesthúsahverfi, sundlaug og matvörubúð.
***Smellið hér til að sækja söluyfirlit***Áhugasömum er bent á að bóka tíma í einkasýningu hjá Unnari í s:867-0968 eða
[email protected]. Ekki verða haldin opin hús.
Nánari lýsing á eigninni:
Húsið er teiknað og skráð sem einbýlishús en búið er að skipta upp húsinu í þrjár íbúðir og eru þær allar í útleigu.
A.T.H að húsið er ekki samkvæmt samþykktum teikningum.Íbúð nr. 1 - Neðri hæð.Forstofa: Með góðum skápum og flísum á gólfi.
Hol: Opið rými, parket á gólfi. Þar var áður stigi upp á efri hæð en nýtist í dag sem stofa.
Björt stofa / borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er trappa niður í bjartan sólskála. Útgengt á pall úr sólskála.
Stórt eldhús með góðu skápa og vinnuplássi. Eldhúskrókur innst í eldhúsi. Flísar á gólfi.
Herbergi I með parketi á gólfi.
Herbergi II með parketi á gólfi og lausum fataskáp sem getur fylgt.
Baðherbergi með handlaug, sturtuklefa og salerni. Flísalagt.
Íbúð nr. 2 - Efri hæðGengið er upp stiga upp á svalir. Sérinngangur inn í íbúð af svölum.
Alrými þar sem kjörið er að hafa setustofu eða sjónvarpshol. Þaðan er útgengt á stórar svalir.
Herbergi I með parketi á gólfi.
Herbergi II með parket á gólfi.
Baðherbergið er rúmgott með upphengdu salerni, hornbaðkari, flísalögðum sturtuklefa með glerhurð og góðri innréttingu. Flísalagt.
Íbúð nr. 3 - BílskúrÍ bílskúr hefur verið útbúin stúdíó íbúð. Teppaflísar eru á alrými. Eldhúsinnrétting með vínylparketi. Baðherbergi með salerni og sturtuklefa. Vínylparket á baðherbergi. Bílskúrshurð hefur verið fjarlægð og er í stað komin inngangshurð og gluggar. Hægt er að ganga út í garð um bakhurð.
Rúmgott bílaplan er fyrir framan hús. Stór pallur er útfrá sólskála.
Nánari upplýsingar veitir Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s:867-0968 eða
[email protected]Daði Hafþórsson, löggiltur fasteignasali, í s:824-9096 eða
[email protected]***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook