Eignamiðlun kynnir:
**Opið hús fimmtudaginn 12. september milli kl. 12:15 og 12:45**
Virkilega falleg 155,3m² vel skipulögð þriggja herbergja útsýnisíbúð á 5. hæð með yfirbyggðum svölum sem eru samtals 22m² að stærð, samtals er því heildarflötur m. yfirbyggðum svölum 177,4m². Einstakt sjávarútsýni með Snæfellsjökul í grunni. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílgeymslu.Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxSamkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 155,3m², flatarmál íbúðarrýmis er 134,6m² og flatarmál geymslu er 20,7m².
Eignin skiptist í forstofu, alrými með stofu, eldhúsi og borðstofu. lokaðar svalir. Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottherbergi og geymslu. Auk bílastæðis í bílakjallara.
Nánari lýsing: Forstofa með fataskáp.
Eldhús með fallegri viðar innréttingu með efri og neðri skápum, bakaraofn og combiofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél, innbyggðu ísskápur. Span helluborð, háfur og borðplata úr kvartstein.
Stofa og
borðstofa eru bjartar og opnar inn í eldhús. Gengið er út á yfirbyggðar svalir sem snúa í vestur með glæsillegu útsýni.
Hjónasvíta með stóru
baðherbergi, falleg innrétting með góðu skápa- og skúffuplássi, tveir vaskar, vegghengt salerni, sturta, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum. Rúmgott lokað
fatherbergi.
Aukaherbergi er rúmgott og með fataskápum.
Baðherbergi nr 2 er með innréttingu undir handlaug, sturtu, vegghengdu salerni, glugga og flísum á gólfi og veggjum.
Þvottaherbergi er innaf eldhúsi lokað af með rennihurð.
Rúmgóð sérgeymsla er á jarðhæð í sameign hússins.
Bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Búið er að setja upp
rafhleðslustöð.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign á jarðhæð.
Nánari uppl.Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma
896 1168 -
[email protected]***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook