Opið hús: 01. júlí 2024 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús: Álfaskeið 96, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 03 04. Eignin verður sýnd mánudaginn 1. júlí 2024 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Eignamiðlun kynnir:
Virkilega falleg, vel skipulögð og endurnýjuð 87,9 fm þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð í fjölbýli með sér inngangi af svölum. Íbúðin sjálf 81,6 fm, geymsla í kjallara 6,3 fm, samtals 87,9 fm. Opið eldhús í stofu og útgengt út á sólarsvalir í suðvestur. Eignin getur verið laus mjög fljótlega. Fáðu sent söluyfirlit hér
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða [email protected] Lýsing eignar: Íbúðin er á þriðju hæð, gengið upp tvær hæðir í stigahúsi og þaðan á svalir þar sem inngangar eru í íbúðirnar.
Sér inngangur af svölum, rúmgóð flísalögð forstofa. Frá forstofu er lítil geymsla eða fatahengi í lokuðu rými.
Hol, eldhús með snyrtilegri svartri innréttingu, opið inn í stofu. Eldhús endurnýjað fyrir nokkrum árum.
Rúmgóð björt stofa og borðstofa með útgengi á svalir til suðvestur, fallegt útsýni.
Á gangi er gott svefnherbergi með skáp. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum, baðkar með sturtu og fín eldri innrétting.
Annað nokkuð gott herbergi með skáp. Parket á gólfum.
Mjög gott standsett flísalagt þvottahús á hæðinni þar sem hver íbúð hefur góða aðstöðu fyrir sýna þvottavél og þurrkara.
Sér geymsla í kjallara og sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Hússjóður 20.800 kr á mánuði og er allur hiti innifalinn í því. Einnig ræsting á sameign.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - [email protected] - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook