Opið hús: 01. júlí 2024 kl. 17:00 til 17:30.Verið velkomin á opið hús mánudaginn 1. júlí á milli 17:00 og 17:30. Fasteignasali tekur vel á móti áhugasömum.
Eignamiðlun kynnir:
Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi með sérmerktu stæði í lokuðum bílakjallara.
Íbúðin er skráð 61,6 fm og skiptist í anddyri, stofu, eldhús, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sérgeymslu í sameign.
** Smelltu hér til að sækja söluyfirlit **Nánari lýsing:Anddyri: Komið er inn í rúmgott anddyri þaðan sem gengið er inn í aðrar vistverur. Einfaldur fataskápur og parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með útgengi á skjólsælar og góðar suðursvalir. Parket á gólfi.
Eldhús: Snyrtilegt opið eldhús með fallegum GKS innréttingum. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur og gott skápa og vinnupláss. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með stórum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt með salerni, handlaug og handklæðaofni. Flísar á gólfi og hluta veggja. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílakjallari: Vel staðsett, sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Búið er að leggja fyrir rafmagnshleðslu og því lítið mál að setja upp hleðslustöð.
Lóðin: Snyrtileg og vel hirt lóð í sameign. Í húsinu er m.a. kaffihús, hársnyrtistofa og apótek.
Í kjallara er sameiginleg vagna- og hjólageymsla og sérgeymsla 7,7 fm.
Einstaklega vel staðsett eign á eftirsóttum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem göngufæri er í alla helstu þjónustu og verslanir.
Nánari upplýsingar veitir:Oddný María Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali í síma
777-3711, tölvupóstur
[email protected]***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook