Eignamiðlun kynnir:
Vel staðsett 131.2fm hæð á jarðhæð í þríbýli við Hlíðarveg 24 í Kópavogi. Íbúðin er 4.herbergja og mjög vel skipulögð með rúmgóðum palli.Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, 3 svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og geymslu/þvottahús.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Gengið er inn í um sérinngang.Komið er inn í flísalagða
forstofu.
Úr forstofu er gengið inn í
sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Eldhús og stofa eru skilin af með vegg sem nær hálfur til lofts. Tækjaskápur eldhúsmeginn.
Eldhúsið er með snyrtilegri hvítri U-innréttingu. Ofn í vinnuhæð. Tengi fyrir uppþvottavél. Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Rýmið nýtist vel og mikið skápapláss. Parket á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð með stóra glugga til suðurs. Úr stofu er gengið út á sólríkan pall í einkaeigu íbúðirnnar. Mjög rúmgóð aðstaða með heitum pott og skjólveggjum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Rúmgott með bæði sturtu og baðkari. Hvít innrétting undir handlaug.
Góð
geymsla/þvottahús með flísum á gólfi. Snyrtileg innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vaski.
Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi. Stór
"walk in" skápur með miklu fataplássi.
Hin
tvö herbergin eru bæði rúmgóð með fataskápum. Parket á gólfi.
Næg bílastæði eru fyrir framan húsið og góð aðkoma að íbúðinni. Snyrtilegur garður er í sameigin allra þriggja íbúðana í húsinu.
Um er að ræða fallega eign í snyrtilegu fjölbýli byggt árið 1998 á frábærum stað í suðurhlíðum Kópavogs. Stutt er í skóla á öllum stigum og alla helstu þjónustu.Nánari upplýsingar veitir
Unnar Kjartansson Löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða
[email protected]***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook