Bríetartún 11, 105 Reykjavík (Austurbær)

72.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 67 m2
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 2018
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 42.150.000
  • Fasteignamat 59.250.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Glæsileg 2ja herbergja íbúð í nýlegu húsi á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur. Gólfhiti og gólfsíðir gluggar. Svalir í suður með svalalokun. 

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, [email protected] 


Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 208 við Bríetartún, 105 Reykjavík. 2ja herbergja íbúð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 67,6 fm, þar af er íbúðarrými 61,4 fm og sérgeymsla er 6,2 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í alrými, rúmgott svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Svalir í suður með svalalokun. 

*** Sækja söluyfirlit ***

Nánari lýsing eignar:
Eldhús er með vandaðri sérsmíðaðri innréttingu frá Schmidt (umboðsaðili Parki Dalvegi). AEG tæki. Parket á gólfi.
Stofa er í alrými með eldhúsi. Parket á gólfi. Útgengt er á suðursvalir úr stofu. Svalalokun. 
Svefnherbergi er rúmgott með sérsmíðuðum fataskápum. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er með vandaðri sérsmíðaðri innréttingu frá Schmidt (umboðsaðili Parki Dalvegi) með góðum skúffum og efri skápum. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Upphengt salerni, handklæðaofn. Flísalagt í hólf og gólf. 
Sérgeymsla (6,2 fm) fylgir íbúðinni, staðsett í kjallara hússins. 

Bílakjallari er sameiginlegur fyrir allt Höfðatorg á tveimur og þremur hæðum. Inn- og útakstur er frá Katrínartúni og Þórunnartúni. Bílakjallarinn er aðgangsstýrður. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook