Eignamiðlun kynnir:
**Bókið einkaskoðun hjá Brynjari í síma 896-1168 eða [email protected]**
Vel skipulagt samtals 240fm einbýli á einni hæð við Espilund í Garðabæ. Fallegt hús með sex herbergjum góðum stofum og rúmgóðum bílskúr. Góð staðsetning á grónum stað miðsvæðis í Garðabæ þaðan sem stutt er í alla þjónustu, skóla, íþróttasvæði Stjörnunnar og fleira.Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxSamkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 240fm, þar af er bílskúr skráður 40fm
Nánari lýsing:
Forstofa er
björt með flísum á gólfi. Frá forstofu er gengið inn í gestasnyrtingungu (er í dag notað sem fatahengi) og geymslu.
Skáli frá forstofu er gengið inn í rúmgóðan skála með flísum á gólfi.
Eldhús með kork á gólfum. Beyki innrétting með góðu skápaplássi, steinn á borðum, flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél:
Borðstofa innaf forstofu er teppalögð borðstofa.
Stofa er björt og falleg með teppum á gólfi, fallegur arinn í stofu.
Fimm herbergi samkvæmt teikningu eru fimm herbergi í húsinu. Í dag er búið að sameina tvö herbergi í eitt.
Hjónasvíta er innst á herbergisgangi. Rúmgott herbergi með fataskápum og baðherbergi með sturtu og vegghengdu salerni.
Baðherbergi með baðkari er á herbergisgangi.
Þvottaherbergi er innaf skála.
Geymsla innaf forstofu og líka á herbergisgangi.
Bílskúr er rúmgóður með tveimur innkeyrsluhurðum.
Gengið er út í garð frá stofu, hjónaherbergi, skála og þvottahúsi. Rúmgott hellulagt bílaplan er framan við bílskúr. Að sögn seljanda er þakdúkur nýlega endurnýjaður.
Nánari upplýsingar veitir:Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali, í síma 896-1168, tölvupóstur
[email protected] ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook