Áshamar 10, 221 Hafnarfjörður

69.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 92 m2
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 2023
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 49.100.000
  • Fasteignamat 66.400.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Frábær 3ja herbergja fullbúin íbúð með vestursvalir og stæði í bílageymslu. Íbúðin er laus strax, til afhendingar við kaupsamning. Fullbúin íbúð með parketi, gardínum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. 

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, [email protected] 

*** Sækja söluyfirlit *** 

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 104 við Áshamar 10, 221 Hafnarfirði, F2526029. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 92,4 fm. Þar af er íbúðarrými skráð 83,5 fm og sérgeymsla er 8,9 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla sem tilheyrir íbúðinni er á jarðhæð hússins. Húsið er byggt 2023.

Anddyri er með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi. 
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu og vönduðum tækjum. Parket á gólfi. 
Stofa er rúmgóð og björt. Parket á gólfi. Útgengt er á vestursvalir úr stofu. 
Svefnherbergi 1 er rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi. 
Svefnherbergi 2 er rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu og speglaskáp. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Upphengt salerni. Walk-in sturta. Flísar á gólfi. 
Sérgeymsla (8,9 fm) er á jarðhæð hússins. 
Hjóla- og vagnageymsla í sameign er á jarðhæð hússins. 
Garður, útgengt er í sameiginlegan garð á sömu hæð og íbúðin.
Bílastæði, einkabílastæði í opinni bílageymslu tilheyrir íbúðinni. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook