Eignamiðlun kynnir:
Glæsilegt og vel skipulagt 168,6 fm raðhús á rólegum barnvænum stað innarlega í lokaðri götu. Stutt í alla verslun, þjónustu, skóla, leikskóla íþróttir, sundlaug og fl. Frábært skipulag, 4 svefnherbergi og 2 baðherbergi.
Fallegt útsýni m.a. Esjan, Kópavogur og fl. Falleg ræktuð lóð með sólríkri afgirtri suðvestur verönd. Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu.***Smelltu hér til að sækja söluyfirlit***Húsið er fyrir neðan götu og á þremur pöllum.
Gengið er inn á miðpall og gengið þaðan annarsvegur uppá efri pall og hinsvegar á neðri pall.
Forstofan með fataskápum. Innangengt er í bílskúr úr forstofu. Hiti í gólfi.
Bílskúrinn er skráður 25 fm og er með mikilli lofthæð. Sirka 8fm milliloft. Heitt og kalt vatn. Rafmagn. Gólfið er epoxy málað.
Úr forstofu er gengið inn í
hol með þakglugga.
Rúmgott
eldhús með borðkrók. Hiti í hluta af gólfi. Falleg innrétting, mikil lofthæð, hvítklædd loft, flísar milli skápa. Útgengt á suðvestur afgirta verönd með markísu.
Gengið er upp á efri pall en þar er rúmgott opið rými sem nýtist sem
stofa og
borðstofa. Stórir gluggar með fallegu útsýni Esjuna og víða. Mikil lofthæð og loft með innfelldum ljósum. Útgengt á norður svalir.
Á efri pall er stórt
hjónaherbergi, hátt til lofts og innfeld ljós.
Fataherbergi innaf hjónaherbergi. Sér
baðherbergi flísalagt með sturtuklefa. Snyrtileg innrétting með góðu skápaplássi.
Úr holi er gengið á neðri hæð.
Gangur tengir saman öll rýmin en hægt er að hafa
sjónvarpshol á gang.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi öll með skápum. Útgengt er í garð úr einu herbergjanna.
Baðherbergið er flísalagt með nuddbaðkari og sturtu. Vegghengt salerni. Stór innrétting með miklu skápaplássi.
Rúmgott
þvottahús með góðu geymsluplássi. Skolvaskur.
Flísar á forstofu, eldhúsi, baðherbergjum og þvottahúsi. Parket á öðrum gólfum.
Bílastæði fyrir framan hús fyrir þrjá bíla. Hiti í plani. Að sögn eiganda var þakið málað fyrir tveimur árum og epoxy grunnað.
Húsið hefur verið málað reglulega. Gluggar og þakkantur fyrir um 2 árum.
Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson, löggiltur fasteignasali í s:824-9093 eða
[email protected]Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í s:867-0968 eða
[email protected]***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook