Eignamiðlun kynnir:
Björt og rúmgóð 95,9 fm. fjögurra herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð við Leifsgötu 20. Einungis þrjár íbúðir í stigahúsinu, ein íbúð á hæð. Snyrtilegt stigahús með teppi á gólfum.Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxSamkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 95,9fm, þar af er flatarmál geymslu 4,6 fm.
Nánari lýsing:Hol með fatahengi, parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi.
Eldhús er rúmgott og bjart með góðri innréttingu, flísar á milli skápa, bakarofn í vinnuhæð, helluborð, háfur og innbyggð uppþvottavél, parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum, parket á gólfi. Lítið
herbergi 2 með parketi á gólfi (var áður eldhús).
Herbergi 3 með parketi á gólfi (gengið inn í herbergi af stigagangi framan við íbúðina).
Baðherbergi með flísum á gólfi, innréttingu, baðkar með sturtu, vegghengt salerni og handklæðaofn.
Sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð og er innangengt úr stigagangi. Sameignin er mjög snyrtileg og er gengið út í garð frá jarðhæð. Fallegur og gróinn garður við húsið sem er í sameign íbúa.
Skv.seljanda hefur eftirfarandi verið gert: Dren endurnýjað árið 2017, frárennsli frá húsi og út í götu árið 2018, baðherbergi endurnýjað árið 2019, nýr fataskápur í hjónaherbergi árið 2019, gólfefni í íbúð endurnýjuð árið 2019, háfur, bakarofn, vaskur og blöndunartæki í eldhúsi endurnýjað árið 2019, dyrasími endurnýjaðir árið 2020, þak einangrað, skipt um þakjárn og rennur árið 2021, gluggar yfirfarnir og skipt um gler árið 2022, gluggi í stigahúsi er nýlega endurnýjaður.
Skemmtileg staðsetning í rólegri götu rétt við Hallgrímskirkju, göngufæri við miðbæinn. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni. Stutt í sund og fallegt umhverfi.
Nánari uppl.Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma
896 1168 -
[email protected]***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook