Eignamiðlun kynnir:
Þorláksgeisli 21, 113.1 fm 4 herb. íbúð á jarðhæð í frábærlega vel staðsettu fjölbýli ásamt stæði í í bílageymslu. Stór afgirt og einstaklega sólrík og skjólgóð timburverönd með heitum potti sem er gengið er útá frá stofu og svefnherbergi. 3 svefnherbergi, stofa,eldhús, baðherbergi og sérþvottahús. Sannkölluð náttúruparadís við óbyggt svæði til suðurs. Sérgeymsla á hæðinni.
Bókið skoðun hjá Þórarni lögg fs í síma 899-1882, eða [email protected]Eignin
er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 226-9035, nánar tiltekið eign merkt 01-03. Ibúðin er skráð 106 fm og sérgeymsla í sameign merkt 01-17 er skráð 7,1 fm, birt heildarstærð 113.1 fm. . Eigninni fylgir bílskúr/ stæði í bílageymslu merkt B-09. Sérafgirt verönd með heitum potti.
Eignin skiptist í: Forstofu, 3 svefnherbergi, stofu, eldhús, þvottahús og baðherbergi. Sérgeymsla á hæðinni og innangengt í bílageymslu.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa með flísum og skápum.
Eldhús, flísalagt með góðri innréttingu , eldaeyju og áföstu borði í borðkrók við glugga. Steinn á borðum.
Rúmgóð parketlögð stofa, gengið út á afgirta skjólgóða timburverönd í suðvestur, heitur rafmagnspottur sem fylgir.
Sérþvottahús, flísalagt.
Baðherbergi flísalagt með baðkari, sturtuklefa og innréttingu.
Hjónaherbergi með parketi og góðum skápum, gengið út á veröndina.
Tvö barnaherbergi, parketlögð og eru skápar í öðru þeirra.
Á sömu hæð er rúmgóð sérgeymsla með hillum og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Innangengt er í bílakjallarann þar sem að íbúðin á sérmerkt gott bílastæði með tengingu fyrir rafbílahleðslustöð. Virkilega góð íbúð á rólegum og fjölskylduvænum stað með fallegt útivistarsvæði og góðar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni. Göngufæri í skóla og leikskóla sem og stutt í verslanir og alla helstu þjónustu.Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur
[email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook