Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun fasteignasala og Ingimar Másson löggiltur fasteignasali kynna: Eskilund 12 sumarhús í landi Miðfells Bláskógabyggð, Þingvallahreppi. Eignin skiptist í aðalhús 35m² og 15 m² gestahús sem kemur ekki fram í skráðri fm tölu.Skipulag eignar: Húsið skiptist í anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, svefnherbergi, baðherbergi og gestahús. Verönd sem liggur meðfram húsi.
Anddyri - Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Eldhús með innréttingu, eldavél/ofn, uppþvottavél. Svefnherbergi inn af stofu. Baðherbergi er með salerni, sturtuklefa og baðinnréttingu. Gólfefni, flísar og parket.
Innbú getur fylgt eftir samkomulagi utan persónulegra muna.
Eignin stendur á gróinni 1600 m² leigulóð. Malarbílastæði fyrir tvær bifreiðar.
Eskilundur er sumarhúsasvæði í landi Miðfells í Þingvallahreppi á kyrrlátum stað í nálægð við Þingvelli. Um það bil klukkustundar fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Ekið er um veg nr. 36 Þingvallaveg.
Lokað öryggishlið er inn á sumarhúsalandið við Eskilund.
Nánari upplýsingar veitir Ingimar Másson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 6122277, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090Góð staðsetning stutt í ýmsa þjónustu, afþreyingu og ýmsa þekkta staði á Suðurlandi, Sólheimar, Þingvellir, Kerið, Laugarvatn, Minni-Borg, Gullfoss, Geysir og Kerið.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook