Laugavegur 27, 101 Reykjavík (Miðbær)

98.700.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 83 m2
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 2019
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 71.500.000
  • Fasteignamat 82.350.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Penthouse  íbúð á fjórðu og fimmtu hæð í nýlegu lyftuhúsi með stæði i bílgeymslu við Laugaveg 27b í Reykjavík. Um er að ræða Brynjureit sem samanstendur af Hverfisgötu 40-44 og Laugavegi 27 a og b. Tvennar svalir eru á íbúðinni. 14,6 fm svalir út frá stofu og 22,9 fm þaksvalir með tengi og niðurfalli fyrir heitum potti.  Komnar eru lagnir fyrir hleðslustöð í bílageymslu. Íbúðin er með gólfhita . Mjög góð staðsetning í miðborg Reykjavíkur í göngufæri við alla helstu þjónustu. Svalir bjóða upp á sól allan daginn ef hún skín. 

Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, baðherbergi, hjónaherbergi og eldhús á neðri hæð og skála/herbergi á efri hæð þar sem gengið er út á þaksvalir. Á jarðhæð er geymsla íbúðar og bílakjallari sem ekið er í frá Hverfisgötu.

Nánari lýsing
Forstofa er rúmgóð og björt með fataskáp. Borðstofa/stofa liggja saman við eldhús íbúðarinnar. Eldhúsið er opið yfir í stofu með fallegri innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppvottavél. Svefnherbergið er nokkuð rúmgott. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og með sturtu og gófhita. Innrétting er við vask og speglaskápur á baðherbergi. Tengi  er fyrir þvottavél og þurrkara með innréttingu. Rúmgóðar og bjartar svalir eru meðfram stofunni. Parket er á neðri hæð fyrir utan baðherbergi. Stigi er frá stofu upp í bjartan skála sem er nýttur sem skrifstofa/herbergi, parket er á gólfi. Skálinn er með stórum gluggum. Gengið er frá skála út á þaksvalir. Bílastæði í lokuðu bílahúsi. Búið er að setja upp lagnir þannig hægt sé að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.

Mjög falleg og sjarmerandi íbúð í nýlegu húsi í miðbæ Reykjavíkur.
 
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook