Orkureitur stórar svalir íb. 602, 108 Reykjavík (Austurbær)

78.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 70 m2
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 2024
  • Lyfta
  • Brunabótamat 0
  • Fasteignamat 6.050.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Dalsmúli 1,íbúð 06-02 er 2 herbergja, 70.0 fm íbúð með stórum svölum og frábæru útsýni.
Eignamiðlun og Safír byggingar ehf kynna nýjar eignir við Dalsmúla 1-3 í glæsilegu lyftuhúsi á Orkureitnum, sannkölluðum sælureit við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna.
Bókið skoðun: Gunnar Bergmann í síma 839-1600 eða [email protected]

Heimasíða verkefnisins:

Dalsmúli 1, íbúð 06-02 er 70.0 fm 2 herb.íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á einstaklega góðum stað rétt við Laugardalinn. 
Opinber skráning eignarinnar: Birt flatarmál er 70.0 fm, með geymslu í sameign.
Afhending íbúðanna: Gert er ráð fyrir að afhending fyrstu íbúða í Dalsmúla 1-3 verði haustið 2024
Nánar um orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir

Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús.

Framtíðarheimili á Orkureitnum
Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“.

Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.

Nánari upplýsingar:
Gunnar Bergmann Jónsson lögg fs sími 839-1600, [email protected]
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook