Eskiás 3 íb104 0, 210 Garðabær

87.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 101 m2
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2023
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 62.450.000
  • Fasteignamat 75.650.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Mjög vel skipulögð 3ja herbergja 101,2 fm íbúð með góðum herbergjum og fataherbergi í stærra herberginu. Íbúðin er á fyrstu hæð með sérafnotarétti og sér inngangi. Fallegt ljóst harðparket á gólfum, hvítir listar. Útgengi út frá hjónaherbergi í sameignilegan garð. Vandaðar innréttingar í eldhúsi og fataskápar frá GKS. Íbúðin er laus við kaupsamning.

Bókið skoðun hjá Gunnari Bergmann í síma: 839-1600 eða [email protected]


Íbúð 104 á 1. hæð með 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi með þvottaaðstöðu, sérafnotareiti og sérgeymslu innan íbúðar. Rúmgott alrými og opið eldhús. Horn íbúð.
-     Innréttingar í eldhúsi eru af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS.
-     Eldhústæki; blástursofn, spanhelluborð og innbyggður ísskápur frá Whirlpool sem og innbyggð uppþvottavél.
-     Baðherbergi/þvottahús er forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af  Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð.  
-    Öll hreinlætistæki eru að vandaðri gerð frá Grohe.
-    Ljósleiðarar frá OR og Mílu
-    Rafbílahleðslukerfi á sex stöðum við húsið.

Næg bílastæði eru fyrir framan húsið, í nágrenni eru fallegar gönguleiðir og stutt í þjónustu og verslanir við Garðatorg.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign) 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.

Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - [email protected] - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook