Jaðarleiti 6, 103 Reykjavík (Kringlan/Hvassal)

67.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 67 m2
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 2018
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 50.170.000
  • Fasteignamat 63.150.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulögð og afar vönduð 3ja herb. íbúð á 3. hæð.  Íbúðin er 67,20 fm í vönduðu lyftuhúsi frá 2018, gólfsíðir gluggar og hiti í gólfum. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara og sér geymsla. 

Nánari upplýsingar veitir Unnar Kjartansson í s:867-0968 eða [email protected]

Nánari lýsing

Forstofa með rúmgóðum fataskáp frá GKS
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu frá GKS. Grá borðplata og heimilistæki sem fylgja með. Ísskápur og uppþvottavél innbyggt. 
Stofan myndar eina heild með eldhúsi. Gólfsíðir gluggar.
Gengt út á rúmgóðar vestursvalir úr stofu með svalalokun.
Hjónaherbergi með rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja. Rúmgóð sturta, vegghengt salerni, falleg hvít innrétting frá GKS með handlaug og speglaskápum. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Á allri íbúðinni er harðparket, nema á baðherbergi, þar eru flísar. Gólfhiti
Sér geymsla í kjallara, 6.7 fm.

Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara. Búið er að leggja rafmagn fyrir hleðslustöð, að bílastæði.
Hjóla- og vagnageymsla; Er á jarðhæð við hlið aðalinngangs. 

Íbúðin er í nýlegu lyftuhúsi, sem stendur fyrir sunnan Útvarpshúsið. Húsið er mjög vandað í alla staði, m.a. góð hljóðvist í íbúðum, gólfhiti og einnig er húsið klætt með fallegri og vandaðri álklæðningu.

Stutt er í Kringluna, leikhús, heilsugæslu, apótek, veitingahús, skóla og alla almenna þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali,  í s:867-0968 eða [email protected]
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook