Eignamiðlun kynnir:
Laxatunga 143, glæsilegt 224.6 fm 5 herbergja einbýlishús á besta stað í Mosfellsbæ með útsýni. Steyptar verandir með heitum og köldum pottum, vönduð innbyggð baðtæki og innréttingar. Tvö baðherbergi. Stór bílskúr. Laust fljótlega. Eigendur skoða skipti á minni eign í Mosfellsbæ.Eignin
er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 233-1202, nánar tiltekið eign merkt 01-01. Húsið er skráð 184.8 fm Eigninni fylgir bílskúr, stærð bílskúrsins er 39.8 fm , birt heildarstærð 224.6 fm.
Eignin skiptist í: Forstofu, 4-5 svefnherbergi, 1-2 stofur, eldhús og 2 baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.Nánari lýsing eignarinnar:Komið er inn í forstofu. Á hægri hönd er baðherbergi með sturtu, klætt með Fibo klæðningu víniflísar á gólfi. Innaf af baðherbergi er eitt af herbergjunum. Á vinstri hönd er bílskúrinn og rúmgott þvottahús með innréttingu, ásamt geymslu. Búið er að stúka af herbergi í skúrnum sem er parketlagt. Lítið mál að breyta til baka. Sjónvarpsherbergi er á hægri hönd, þar innaf er eitt af svefnherbergjum. Eldhús er stórt með stóri eyju og tækjum frá AEG, mikið skápapláss. Á móti eldhúsi er stórt herbergi. Allar innréttingar í húsinu koma frá Axis og gólfefni frá Þ.Þ , það er vínilparket á öllu húsinu fyrir utan baðherbergi sem eru að flíslögð að hluta, Fibo klæðningar á öllum veggjum baðherbergja. Stofan er tveimur tröppum fyrir neðan aðalhæðina, mjög rúmgóð með miklu útsýni, útgengt er út frá stofu á steypta verönd. Inn af stofu er hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi með baðkari og sturtuklefa. Útgengt út frá hjónasvítu út á verönd þar sem heitur og kaldur pottur eru. Á verönd eru, pottar klæddir með viðhaldsfríu efni, Viroc. Hiti er í bílaplani fyrir 4-6 bíla. Mikið útsýni er frá húsinu upp að Esju og suður á flóa.
Gólfhiti er í öllu húsinu og innbyggð ljós með dimmingu.
Húsið er viðhaldslítið bárujárnsklætt hús. Stéttar í kringum hús eru steyptar og allar steinhleðslur frá steypustöðinni.
Nánari upplýsingar veitir H. Daði Hafþórsson Löggiltur fasteignasali, í síma 8249096, tölvupóstur [email protected] eða Rögnvaldur Örn Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 660-3452, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook