Eignamiðlun kynnir:
3ja herbergja 57,7 fm íbúð á jarðhæð með sérinngang við Bakkagerði 7, 108 Reykjavík. Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, tvö svefnherbergi, (þar annað lítið innaf stofu), stofu og baðherbergi. Óskráð útigeymsla er við inngang íbúðar. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
Gengið er inn í forstofu með fatahengi. Frá forstofu er gengið í nokkuð rúmgott hol með parketi á gólfi. Eldhúsið er parketlagt og með hvítri innréttingu. Baðherbergið er með flísalagða veggi og dúk á gólfi. Baðkar og gluggi á baðherbergi. Svefnherbergin eru bæði parketlögð. Stærra herbergið er með fataskápum. Stofan er parketlöð og er minna herbergið þar innaf. Garðurinn er nokkuð stór og er sameiginlegur. Parket íbúðar er misgott.
-Eignin þarfnast einhverra endurbóta og standsetningar.
-Seljandi eignarinnar hefur ekki búið í eigninni og getur hann því ekki uppfyllt upplýsingarskyldu sína. Kaupendur eru hvattir til þess að kynna sér eignina rækilega og með fagmanni/skoðurnarmanni.
-Eignin afhendist í því ástandi sem hún er í og kaupandi hefur kynnt sér rækilega og sættir sig við að öllu leiti.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook