Vesturvin v1 íb 601 0, 101 Reykjavík (Miðbær)

234.500.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 193 m2
  • Herbergi 3
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 0
  • Lyfta
  • Brunabótamat 0
  • Fasteignamat 13.250.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Bókaðu skoðun í sýningaraðstöðu hjá Ólafi í síma 663-2508 eða [email protected]
Íbúðin er 193,4 fermetra lúsusíbúð á sjöttu hæð í nýju glæsilegu lyftuhúsi, rúmgóð og björt stofa með þakvölum útfrá stofu, fjölskyldurými tengt stofu, glæsileg hjónasvíta með sér baði, fataherbergi og þaksvölum, baðherbergi með sturtu, þvottahús, anddyri, geymsla í kjallara og tvö bílastæði i bílakjallara. Frábær staðsetning, úrval veitingastaða í næsta nágrenni, stutt í miðbæinn og alla þjónustu. Gert er ráð fyrir að íbúðin verði afhent í janúar 2025.

Smelltu hér til að fá sent SÖLUYFIRLIT eignarinnar.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um verkefnið


Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða [email protected]

Eignin: Vesturvin V1, íbúð 01-0601, 193,4 fermetrar á fimmtu hæð með tveimur stæðum merkt B-87 og B-89 í bílageymslu, björt stofa og eldhús í alrými með 24,8 fermetra þaksvölum frá stofu, glæsileg hjónasvíta með sér baðherbergi, fataherbergi og þaksvölum, svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, rúmgott þvottahús, forstofa með góðu skápaplássi, tvær geymslur í kjallara, 35,9 fermetra merkt 01-0054 og 17,4 fermetrar merkt 01-0002. Sérvaldar innréttingar eru í öllum íbúðum og settu hönnuðir saman nokkrar litasametningar á innréttingum. Í þessarri íbúð voru valdar litasamsetningar samkvæmt SÆR hönnunarþema - sjá nánar hér:  HÖNNUNARÞEMA  Smelltu hér til að sjá teikningu af íbúðinni: TEIKNING  Myndir eru úr fullinnréttaðri sýningaríbúði í Vesturvin 2, íbúð 205, með innréttingarþema Eimur og endurspegla ekki skipulag eignar.

Vesturvin er nýr yndisreitur í uppbyggingu í Vesturbæ Reykjavíkur. Reiturinn sem áður hét Héðinsreitur verður glæsilegt kennileiti sem auðgar borgina og bætir lífsgæði íbúanna.

Mikill metnaður hefur verði lagður í íbúðirnar á yndisreitnum Vesturvin. Það lýsir sé meðal annars í góðu innra flæði íbúða og vönduðu efnisvali í alla staði. Meðal helstu kostum íbúðanna má nefna:
-       Hágæða ítalskar innréttingar frá Cassina
-       Borðplötur úr steini
-       Gólfsíðir gluggar
-       Gólfhiti
-       Þaksvalir í mörgum íbúða
-       Möguleiki á heitum potti fyrir hluta af íbúðum  
-       Vönduð heimilistæki frá Miele og Siemens
-       Sér baðherbergi inn af svefnherbergi í stærri íbúðum auk fataherbergja.
-       Gestasnyrting í fjölmörgum íbúðum
-       Sér þvottahús í flestum þriggja herbergja íbúðum og stærri
-       Einkabílastæði í bílakjallara fylgir mörgum íbúðum

Hönnun.
Fengnir hafa verið traustir og reynslumiklir aðilar til að sjá um framkvæmd verkefnisins og verkfræðihönnun. Jáverk ehf. mun byggja húsin og verkfræðistofurnar Mannvit og Verkhönnun sjá um verkfræðihönnun.
Mikil vinna hefur verið lögð í flæði íbúða og val á innréttingum sem spegla listrænan metnað í verkefninu sem heild.
Ítölsku innanhússhönnuðirnir hjá Studio Marco Piva hafa hannað þrjú þemu fyrir innri frágang íbúðanna sem sækja innblástur í íslenska landslagið, hugtökin eru Eimur, Sær og Blámi. Hönnuninni er ætlað að skapa einstakan lífstíl sem sameinar íslenskan arkitektúr og ítalska innanhúshönnun og glæsilegan og vandaðan hátt.
 
Útsýni
Stórkostlegt útsýni verður úr íbúðum við Ánanaust yfir Faxaflóann, Esjuna og Snæfellsnes. Af efri hæðum íbúða við Vesturgötuna verður skemmtilegt útsýni yfir gamla vesturbæinn.
 
Nánari upplýsingar veita fasteignasalar Eignamiðlunar: 588 9095
Kjartan Hallgeirsson 824-9093 [email protected]
Þórarinn M. Friðgeirsson 899-1882 [email protected]
Brynjar Þ. Sumarliðason 896-1168 [email protected]
Ólafur H. Guðgeirsson 663-2508 [email protected]
Unnar Kjartansson 867-0968 [email protected] 
Lilja Guðmundsdóttir 649-3868 [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook