Skipholt 1 íb 407 0, 105 Reykjavík (Austurbær)

110.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 103 m2
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1960
  • Lyfta
  • Brunabótamat 54.150.000
  • Fasteignamat 65.650.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Skipholt 1 íb 205  - Bókið skoðun-sýnum samdægurs
Endurbyggt vandað fjölbýlishús með lyftu við Skipholt 1 í Reykjavík. Tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir.
Haf Stúdíó kom að hönnun og efnisvali í íbúðum.
Glæsilegar innréttingar frá GKS og AEG innbyggð tæki.
Rúmgóðar sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð.

Skipholt 1 íb 205 er 3 herbergja og heildarstærð er 103,7 fm.

***Bókið skoðun hjá Unnari í s:867-0968 eða [email protected]**
Sýnum samdægurs!


SÖLUSÍÐA MEÐ NÁNARI UPPLÝSINGUM OG TEIKNINGUM.

Skipholt 1 er glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur á horni Stórholts og Skipholts mót hásuðri. Í reisulegu húsi þar sem Listaháskóli Íslands var starfræktur í áratugi hafa nú verið innréttaðar 34 heillandi íbúðir og tvö atvinnurými. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð hússins auka lífsgæði allra íbúa, en þar er sólríkt og magnað útsýni til sjávar og fjalla.
Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali og heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél)
Hurðar frá Agli Árnasyni
Blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, salerni eru með hæglokandi setum
Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.

Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt.
Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.

Fjöldi veitingastaða og fjölbreytt þjónusta í stuttu göngufæri að ógleymdri útivistarperlunni Klambratúni.
Íbúar í Skipholti eiga rétt á íbúakorti og mega þá leggja í gjaldskyldum stæðum, auk þess sem fullt er af ógjaldskyldum stæðum td í Skipholtinu. Íbúakortið kostar kr. 1.400- á mánuði fyrir rafmagns og vetnis bifreiðar, en kr. 2.800 fyrir aðrar tegundir bifreiða.

Nánari upplýsingar veita:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, sími 867-0968, [email protected]
Rögnvaldur Örn Jónsson, löggiltur fasteignasali, sími 660-3452, [email protected]
Oddný María Kristinsdóttir, löggiltur fasteignasali, sími 777-3711, [email protected]
Magnús Þórir Matthíasson, löggiltur fasteignasali, sími 895-1427, [email protected]
Jenný Sif Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, sími 843-0087, [email protected]

 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook