Heiðnaberg 7, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)

127.900.000 kr.
  • Tegund Parhús
  • Stærð 210 m2
  • Herbergi 5
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1982
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 102.850.000
  • Fasteignamat 103.150.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Heiðnaberg 7,  Glæsilegt, 210.8 fm 5 herbergja parhús í mjög fallegri götu við Heiðnaberg í Breiðholti. Búið er að skipta um alla glugga og hurðir í húsinu og viðhald hefur verið mjög gott síðustu ár. Bílskúr fylgir eigninni, góður garður með verönd sem snýr í suðvestur.  Stuttu í skóla og þjónustu. Frábært fjölskylduhús.

Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 205-1111, nánar tiltekið eign merkt 01-01.  íbúðin er skráð  184,2 fm. Eigninni fylgir bílskúr stærð bílskúrsins er 26,6 fm, birt heildarstærð 210.8 fm. 

Eignin skiptist í: Forstofu, 4 svefnherbergi, stofu, eldhús, borðstofu, gestasalerni, baðherbegi, útilgeymslu, þvottahús og bílskúr. 

****Smelltu hér til að sækja söluyfirlit****

Nánari lýsing eignarinnar:
Neðri hæð:

Komið er inn í flísalagða forstofu með snyrtilegu gestasalerni.
Borðstofan og eldhús liggja saman þar sem útgengi er út í garð.
Eldhúsið er rúmgott með góðri viðarinnréttingu, blönduð af hvítum lit og eik, steinborðplata og flísar á gólfi.
Inn af eldhúsi er gott þvottahús.
Stofan er mjög björt og falleg. Mikil lofthæð og sérstaklega stórir gluggar.
Inn af borðstofu er rúmgott svefnherbergi með stórum fataskápum.
Efri hæð:
Gengið er upp stiga með kókos teppi.
Á efri hæðin eru 3 rúmgóð herbergi, nýjir fataskápar, parket á gólfum.
Rúmgott baðherbergi með nuddbaðkari og sturtu. Flísalagt í hólf og gólf.
Bílskúr er með vatni og hita ásamt góðu millilofti. 
Húsið er vel staðsett þar sem gata fékk verðlaun fyrir nokkrum árum fyrir skipulag og góða umhirðu. 

Frábær staðsetning í rótgrónu hverfi og stutt í alla helstu þjónustu, auk skóla á öllum stigum.

Nánari upplýsingar veita:
Daði Hafþórsson, löggiltur fasteignsali í s:824-9096 eða [email protected]

 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook