Tryggvagata 23, 101 Reykjavík (Miðbær)

249.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 192 m2
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 2018
  • Lyfta
  • Brunabótamat 139.200.000
  • Fasteignamat 172.700.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Tryggvagata 23, lúxus 4 herbergja fasteign á efstu hæð í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.
Íbúðin eru frábærlega staðsett í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu.
Allar innréttingar og tæki eru sérvalin af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Íbúðin er öll málið í kalkgráum lit. Hurðrar eru einnig sprautulakkaðar í sama lit. 
Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. 

Bókið skoðun hjá Daða Hafþórssyni í s:824-9096 eða [email protected]

EFSTA HÆÐ - AUKIN LOFTHÆÐ - Tryggvagata 23, íbúð 04-02 er skráð 192,5 fm, fjögra herbergja. Íbúðin selst með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, vínkæli og tveimur bakarofnum, annar með örbylgju.

Forstofan er rúmgóð með góðu skápaplássi. Fataskáparnir eru sprautulakkaðir með innvols frá Innval af vandaðri gerð. Inngangshurð er svargrá með viðaráferð frá Huet.
Þvottahús er innaf forstofu með vandaðri innréttingu frá Nobolia.
Baðherbergi er flísaflagt með flísum frá Iris stone á bæði gólf og veggi. Falleg innrétting frá Nobilia. Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni. Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa og falleg sturta með blöndunartækjum frá Vola. 
Eldhúsið er með glæsilegri innréttingu frá Nobolia. Borðplata og klæðning er úr Meganite Carrara efni og með eldhúsvask sem felldur er í borðplötuna úr sama efni. Öll eldhústæki eru af vönduðustu gerð frá Siemens. Lýsing er undir efri skápum og ljúflokun á skúffum og skápum. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél og vínkælir fylgir.
Stofa og borðstofa eru sitthvorum meginn við eldhúsið sem myndir stórt og rúmgott alrými. Tvennar svalir eru í íbúðinni.
Svefnherbergi er með fataskápum sem eru sprautulakkaðir með innvols frá Innval af vandaðri gerð.
Hjónaherbergið er afar rúmgott með fataherbergi/fataskápum sem eru sprautulakkaðir með innvols frá Innval af vandaðri gerð.
Gengið er inn í baðherbergi frá svefnherberginu sem er flísalagt með flísum frá Iris stone á bæði gólf og veggi. Falleg innrétting frá Nobilia. Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni. Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa, falleg sturta og baðkar, blöndunartæki frá Vola

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 192,5 fm, þar af geymsla 12,6 fm. 

Innihurðar eru sprautulakkaðar mattar í sama lit og veggir, framleiddar hjá HBH smíðaverkstæði.
Rafkerfi útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. E-Net ljósastýrikerfi frá GIRA er í íbúðinni sem býður upp á notkun smáforrits (app) í snjalltækjum til að stýra ljósum.
Hita og loftræstikerfi pípulagnakerfi hússins (innan íbúða) er leitt í gegnum lóðrétta lagnastokka. Ofnalagnir eru innsteyptar rör-í-rör og ofnar eru með vönduðum ofnlokum frá Danfoss

Einstakt hús í hjarta borgarinnar.
Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsinu er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. 

Bílakjallari
Í bílakjallaranum, sem er opinn allan sólarhringinn alla daga ársins, er sólarhringsvöktun og öryggisgæsla. Íbúum hússins gefst kostur á að gera langtímasamning um leigu á bílastæði.

Hönnuðir
Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun.
Guðbjörg Magnúsdóttir, sem er meðal þekktustu innanhússhönnuða landsins, hannaði og sá um efnisval inn íbúðarinnar.

Nánari lýsing eignarinnar:
Nánari upplýsingar veitir H. Daði Hafþórsson Löggiltur fasteignasali, í síma 8249096, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook