Ystasel 24, 109 Reykjavík

0 kr.
  • Tegund Einbýli
  • Stærð 301 m2
  • Herbergi 7
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 5
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1979
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 157.700.000
  • Fasteignamat 144.850.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Mikið endurnýjað, virkilega fallegt, vandað og vel skipulagt 301,7 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum tvöföldum 45,6 fermetra bílskúr á rólegum og fallegum stað við Ystasel 24 í Reykjavík.  Húsið stendur á 700,0 fermetra mjög fallegri lóð sem búið er að jarðvegsskipta og klæða af með girðingu ofan á steyptan grunn. Eignin hefur verið endurnýjuð að miklum hluta síðustu ár, nýtt glæsilegt og fullbúið eldhús frá Eirvík með tveim vinnuskápum, Miele gufuofnum og helluborði ásamt niðurfelldum borð gufugleypi og tveim uppþvottavélum. Búið að skipta út nánast öllu rafmagni og setja nýjar töflur. Nýtt frárennsli bæði innan dyra og utan og neysluvatnslagnir nema á baðherbergi uppi. Búið að jarðvegsskipta bílaplani og steypa og stimpla með snjóbræðslu. Bílastæði fyrir allt að sjö bíla. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni.

Eignin er laus og til afhendingar við kaupsamning.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða [email protected] Bókið skoðun, sýnum samdægurs.


Lýsing eignar:
Forstofa: Gengið inn á neðri hæðina. Fatahengi í forstofu. Þaðan gengið inn í tvöfaldan bílskúr. Nýjar bílskúrshurðar á báðum bilum. Nýlega búið að flota gólf og mála, gólfhiti í bílskúr. Búið að útbúa auka geymslu og vinnuherbergi inn í bílskúr.
Búið að setja gólfhita á stærstan hluta neðri hæðar.
Barnaherbergi á neðri hæð rúmgott með nýju harðparketi og nýjum ofni. 
Þvottahús: Nýstandsett með fallegri hvítri innréttingu og góðu skápaplássi. Vinnuborð og vaskur.
Baðherbergi á neðri hæð: Upphengt salerni, stór sturta, handklæðaofn og baðkar. Allt gert á glæsilegan máta árið 2020.
Sjónvarpsstofa: Stórt rými þar sem búið er að útbúa glæsilega aðstöðu með innbyggðu hljóðkerfi, útsog úr rými, teppalagt með gólfhita.
Gengið er upp á efri hæð hússins um fallegan bogadreginn steyptan og parketlagðan stiga með fallegu handriði. Stigapallur ásamt stofu með gegnheilu parketi sem pússað var upp árið 2018.
Stofur: rúmgóðar, bjartar með mikillil lofthæð, innfelldri lýsingu í loftum, útbyggðum glugga til vesturs og útgengi á stórar svalir til norðurs sem mögulegt er að byggja yfir. Kvöldsól.
Eldhús: Vel hannað og glæsilegt eldhús með hvítri innréttingu frá Eirvík og miklu skápaplássi. Vinnuskápur, innbyggður ísskápur, undirborðskælir, Miele ofnar, eldavél og innfelldur borð gufugleypi sem fellur ofan í innréttingu. Gólfhiti í eldhúsi.
Búr: innaf eldhúsi er með glugga og góðum innréttingum með vaski, vinnuskáp, vínkæli, auka innbyggðri uppþvottavél. Gott skápapláss.
Tvö barnaherbergi eru á efri hæðinni bæði með nýjum ofnum og nýju harðparketi.
Hjónaherbergi: parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Baðherbergi á efri hæð: marmari á gólfi og góðar innréttingar. Nýtt upphengt salerni.
Sólskáli/garður: innangengt er í sólskála úr baðherbergi, rúmgóður upphitaður skáli með heitum potti, þriggja fasa rafmagn í sólskála.  Úr sólskála er útgengt út í stóran garð sem búið er að taka allan í gegn, jarðvegsskipta og setja dren fram með húsinu. Búið að girða af skýli fyrir átta ruslatunnur. Nýlegur pallur og hellulögn. Virkilega vandaður og glæsilegur frágangur.
Bílskúr: er 45,6 fermetrar að stærð og með tveimur nýjum innkeyrsluhurðum. Rafmagn, hiti, heitt og kalt vatn eru í bílskúr. Búið er að stúka af vinnuherbergi og geymslu innan bílskúrs. Tenging fyrir 3ja fasa rafmagn til staðar í bílskúr og mögulega hægt að setja upp sauna klefa.
Húsið að utan: Þak yfirfarið reglulega og virðist vera í góðu ástandi. Ytra byrgði húss lítur vel út. Garðurinn nýupptekinn og frágangur til fyrirmyndar. Steyptur kantur meðfram lóðinni og niður fyrir hús, búið að drena. Mjög  stórt bílaplan fyrir framan hús steypt og stimplað, snjóbræðsla í öllu framvið hús, líka í gangstétt. Rafmagnstenglar til staðar fyrir framan hús og 22kw hleðslustöð, lagnaleið fyrir auka hleðslustöð.
Viðhald: Eignin hefur fengið mjög gott viðhald síðustu ár. Nýlega búið að gera úttekt á eigninni og fara í allar framkvæmdir sem gerðar voru athugasemdir við.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook