Engjasel 72, 109 Reykjavík

59.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 113 m2
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 1976
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 47.630.000
  • Fasteignamat 50.900.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Góð fjögurra herbergja íbúð í nýlega uppgerðu húsi í Seljahverfinu. Frábært útsýni. 

*** Bókið skoðun hjá Kára í síma 899-8815 eða með tölvupósti á [email protected] *** 
 
*** Smellið hér til að sækja söluyfirlit *** 

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 402 við Engjasel 72, 109 Reykjavík, F2055527. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 113 fm. Þar af er íbúðarrými 95,5 fm. 4,5 fm sérgeymsla á jarðhæð hússins sem tilheyrir íbúðinni. Íbúðinni fylgir sérstæði í bílageymslu sem skráð er 13 fm. Íbúðin er á tveimur hæðum og skiptist í eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérþvottahús á neðri hæð og hol og svefnherbergi á efri hæð. 

Fasteignamat 2024 = 56.700.000 kr.

Nánari lýsing: 
Neðri hæð:
Anddyri
.
Eldhús er hálfopið í alrými. Stór hvít eldhúsinnrétting. Parket á gólfi. 
Stofa/borðstofa er í alrými. Parket á gólfi. Hringstigi er upp á efri hæð úr stofu. Frábært útsýni er úr stofunni. 
Svefnherbergi 1 er rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi. Útgengt er á suðvestursvalir úr herberginu. Frábært útsýni er úr herberginu og af svölunum. 
Svefnherbergi 2 er undir súð. Parket á gólfi. 
Þvottaherbergi er undir súð. Flísar á gólfi. 
Baðherbergi er með eldri innréttingu. Salerni, baðkar með sturtuaðstöðu. Flísar á gólfi og á og við baðkar. 
Efri hæð: 
Hol er uppi á stigapalli. 
Svefnherbergi 3 er rúmgott, undir súð. Frábært útsýni. 
Sérgeymsla (4,5 fm) er í kjallara hússins. 
Sérstæði í bílageymslu (nr 36) fylgir íbúðinni. Sameiginlegt þvotta- og þurrkstæði er í bílageymslunni. 

Nýlegar framkvæmdir:
Ný rafmagnstafla og nýtt mynddyrasímakerfi 2023 
Árið 2019 var gerð ástandsskýrsla og í kjölfar hennar ráðist í framkvæmdir.
Helstu atriði sem ráðist var í:
Múrviðgerðir á útveggjum og svölum
Viðhaldslétt álklæðning á suðvestur, norðaustur og norðvestur hliðar hússins 
Svalagólf viðgerð og endursteypt þar sem þess var þörf, svalagólf flotað og málað með epoxy málningu
Svalahandrið endurnýjuð
Gluggar á suðausturhlið og norðvesturgafli hússins endurnýjaðir
Þaklæðning ásamt fylgihlutum endurnýjað
Þakrennur og niðurfallsrör endurnýjuð.
Skyggni Engjasels 72 var endursteypt
Þakskegg og norðausturgafl var málaður.
Norðaustur gafl hússins hafði þegar verið klæddur.
Bílskýlið var gert upp árið 2022 eftir bruna. Rafmagn, loftræstikerfi, hurðar, gluggar og loftunarristar

Nánari upplýsingar veitir Kári Sighvatsson lögfr. og löggiltur fasteignasali í síma 899-8815 eða á netfanginu [email protected]

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook