Eignamiðlun kynnir:
**NÝTT INN** SÝNUM DAGLEGA
Eignamiðlun ehf. auglýsir íbúðir í nýbyggingu við Gæfutjörn 10 og Rökkvatjörn 1, Úlfarsárdal, 113 Reykjavík. Afhending í nóvember 2023.Íbúð merkt 0102 - Tveggja herbergja íbúð með einu svefnherbergi og stæði í lokaðri bílageymslu.
Virkilega falleg og rúmgóð 72,5 fm íbúð á fyrstu hæð með sérafnotarétti. Rúmgott svefnherbergi, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, opið eldhús inn í borðstofu og stofu með eyju í eldhúsi. Bílastæði í bílakjallara merkt B19.
Allar íbúðir eru með sér loftræstikerfi sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar sem skilar allt að 80% endurnýtingu á varma. Vönduð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi frá Axis. Svalir með rennihurð.Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða [email protected]Smellið hér fyrir heimasíðu verkefnisins og skilalýsinguNánari lýsing:Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum frá Parka.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða. Eyja með eldavél og góðu skúffuplássi.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á sér afnotarétt út frá stofu, stór rennihurð.
Þvottahús: Þvottahús inn á salerni með fallegri innréttingu.
Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt 9,6 fm geymslu merkt 1.
Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum verða flísalögð. Eldhús- og baðinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - [email protected] - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook