Eignamiðlun kynnir:
Glæsileg 245,9 fm útsýnisíbúð á efstu hæð (6. og 7. hæð) í lyftuhúsi við Kórsali 5 í Kópavogi. Glæsilegt útsýni. Mjög mikil lofthæð er í hluta íbúðarinnar. Stórir gluggar. Fernar svalir. Svalir til suðvesturs útaf stofu. Arinstofa. Innréttingar eru frá Axis. Viðarparket er á gólfum. Íbúðin skiptist m.a. í hol, stóra stofu, arinstofu, eldhús, þrjú rúmgóð herbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og geymslur. Sér geymsla fylgir í kjallara. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
BÓKIÐ SKOÐUN HJÁ : Lilja Guðmundsdóttir s. 649-3868 , [email protected]
Sverrir Kristinsson lg. fasteignasali. Nánari lýsing.
Aðalhæð íbúðar (6. hæð):Hol: Komið er inn í parketlagt hol með skápum.
Stofa: Glæsileg parketlögð stofa með mjög mikilli lofthæð og miklu útsýni. Svalir til suðvesturs eru útaf stofu.
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting frá Axis er í eldhúsi. Ofn og háfur úr stáli. Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Borðkrókur er í eldhúsi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott parketlagt hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi innaf. Fataherbergi með innréttingu og sérsmíðuð innrétting með miklum skúffum í hjónaherbergi.
Baðherbergi (innaf hjónaherbergi): Baðherbergi er flísalagt. Hornbaðkar og sturtuklefi. Handklæðaofn. Svalir eru útaf baðherbergi.
Herbergi II: Rúmgott parketlagt herbergi með svölum útaf á suðausturhlið hússins. Góð geymsla undir súð.
Herbergi III: Rúmgott parketlagt herbergi. Samkvæmt teikningu er herbergið hluti af stofu, auðvelt væri að breyta því aftur.
Baðherbergi: Frá holi er komið í flísalagt baðherbergi með sturutklefa. Innrétting við vask.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús. Innrétting við vask. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er á þvottahúsi.
Milliloft íbúðar (7. hæð):Arinstofa: Á millilofti er parketlögð stofa með arni. Horft er yfir stofu íbúðar frá arinstofu. Glerhandrið. Svalir til suðvesturs eru útaf arinstofu. Stór geymsla er undir súðinni.
Frábær staðsetning. Stutt í leikskóla, skóla, sundlaug, verslanir og alla helstu þjónustu. Fallegra gönguleiði í næsta nágrenni.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook