Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun og Þóra Birgisdóttir lggf.s. 777-2882 kynna bjarta og vel skipulagða 78,0 m2 3 herbergja íbúð á 2. hæð í litlufjölbýlishúsi við Grettisgötuna.
Um er að ræða herbergja íbúð annari hæð í fallegu húsi við Grettisgötu 80, Reykjavík. Eignin skiptist í anddyri/gang, tvennar stofur, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi ásamt útigeymslu.Nánari lýsing: Komið inní anddyri/gang sem er flotaður og lakkaður. Frá gangi er gengið inn í allar vistaverur íbúðar. Stofurnar eru tvær, rúmgóðar og bjartar með gluggum mót suðri og gengið út á svalir úr annari þeirra, gegnheilt eikarparket er á stofunum. Opið er á milli með stóru hurðargati með rennihurð á milli en auðvelt væri að loka þessu og gera annað herbergi þar eða nýta sem svefnherbergi.
Eldhús er með flotuðu gólfi, frístandandi innréttingu, eldavél/ofn eru ný og í eldhúsi er plássi fyrir borðkrók við glugga. Tengt hefur verið fyrir þvottavél/uppþvottavél í eldhúsi.
Svefnherbergi er rúmgott.
Baðherbergi er flísalagt með set-baðkari, handlaug og salerni.
Geymsla: Útigeymsla (3,1 fm) á lóð fylgir íbúðinni.
Garður: Sameiginlegur garður til suðurs - milli Grettisgötu og Njálsgötu er göngustígur og góð aðkoma frá honum í gegnum garðinn að inngangi í sameign bakatil.
Svalir: Svalir til suðurs, út í garð frá stofu.
Allar nánari upplýsingar um eignina og skoðun veitir: Þóra Birgisdóttir lggf. síma 777-2882 eða á netfanginu
thora@eignamidlun.isViðhald eignar:
Janúar 2019. Fóðrun á skólp og frárennslislögnum.
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook