Eignamiðlun kynnir:
Öldugata 14 er virðulegt einbýlishús sem stendur á horni Öldugötu og Ægisgötu i Reykjavík.Um er að ræða allt húsið sem er steinsteypt, tvær hæðir, kjallari og ris, byggt árið 1923. Skúr og stórt bílastæði eru lóð sem er gróin. Til stendur að skipta út gluggum í húsinu í samvinnu við húsafriðunarsjóð.
Húsinu hefur verið skipt í tvær íbúðir og liggur skráningartafla og teikningar fyrir en ekki hefur verið sótt um úttekt til staðfestingar á þeirri skráningu. Birt flatarmál samkvæmt Þjóðskrá Íslands er 438,7 fm. Samkvæmt teikningum bætast 43,6 fm. af birtu flatarmáli við í risi en þar er grunnflötur sem er undir súð að hluta töluvert meiri eða 100,3 fm.
Nánari lýsingGengið er inn i húsið i stórt sameiginlegt anddyri, hægt er að fjarlægja veggi og hurðir og opna inngang betur og færa húsið til opins eldra skipulags því veggir sem skipta húsinu í tvær íbúðum eru ekki burðarveggir.
Á fyrstu hæð er mikilli lofthæð og eru upprunalegir skrautlistar og rósettur í loftum. Hæðin skiptist í tvær stofur, stórt eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Stofurnar eru rúmgóðar, samliggjandi og má loka á milli þeirra. Fallegt parket er a gólfum og arinn er i annarri þeirra. Í eldhúsi er eyja og pláss fyrir stórt eldhúsborð.
Þegar komið er upp á
efri hæð blasir við rúmgott eldhús með fallegum hvítum innréttingum og eldunareyju með steini, inn af því er búr. Rúmgóðar svalir eru á hæðinni til suðausturs. Svefnherbergin á efri hæð eru þrjú og eru þau öll parketlögð og með lausum fataskápum. Baðherbergið er með flísum á gólfi og upp veggi að hluta til. Baðkar, sturtuklefi og innrétting er við vask og er gluggi er á baðherbergi. Stofan er björt með parket a gólfi. Frá stofu er gengið upp i rishæð. Risið er eitt stórt opið rými sem auðvelt væri að stúka niður i herbergi. Risið hefur nýtt sem góð og björt stofa eða vinnuaðstaða.
Sér inngangur er í kjallara auk þess er innan gengt af efri hæðum. Þrjú herbergi eru í kjallara og er eitt þeirra tvískipt. Rúmgott þvottahús með vaski og aðskildu þurrkherbergi er þar að finna. Í kjallara er baðherbergi með sturtu og baðkari, einnig eru í kjallara geymslur og gangar.
Þakjárn var endurnýjað fyrir ca. 17 árum ásamt þakgluggum og þak var einangrað með steinull. Fyrir 14 árum var stigin settur upp i ris og sú hæð standsett.
Um er að ræða glæsilega eign á fallegum stað í hjarta borgarinnar. Húsið byggði J.L. Jensen Bjerg kaupmaður. Hönnuður var Guðmundur H. Þorlaksson byggingarmeistari.
(ATH i dag er húsið skráð sem einbýlishús en mögulegt að skrá i tvíbýli. Heildarstærð húss nú skráð 438,7 fm með bilskúr og miðar fasteignamat og brunabótamat við þá skráningu).
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, i síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is og Daði Hafþórsson lögg. fasteignasali í síma 824-9096, tölvupóstur, dadi@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar i síma 588-9090, Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook