Eignamiðlun kynnir:
Um er að ræða eitt af glæsilegri húsum á Seltjarnarnesi. Húsið sem er 254,7 fm stendur ofarlega á Valhúsabraut og er óbyggt svæði fyrir ofan húsið.
Húsið skiptist m.a. í forstofu, hol, tvær stofur, fjögur svefnhererbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Góðir afgirtir sólpallar í kringum húsið með heitum potti. BÓKIÐ SKOÐUN HJÁ : Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali s: 861-8514 sverrir@eignamidlun.is eða Magnea S. Sverrisdóttir lögg. fasteignasali s. 861 8511 magnea@eignamidlun.isNánari lýsing: Komið er inn í flísalagða forstofu með skápum. Þaðan er komið inn í rúmgott parketlagt hol. Innaf holi er eitt rúmgott parketlagt herbergi með skápum og baðherbergi með sturtuklefa. Gólf á baðherbergi er lagt marmara. Innangengt er í bílskúrinn úr holi. Innaf bílskúr er gott geymslurými. Eldhúsið er með rúmgóðri sérsmíðaðri innréttingu. Gengið er í sólstofu úr eldhúsinu og þaðan er gengið út á afgirta timburverönd. Gengið er niður tvær tröppur í stofuna. Stofan er rúmgóð, parketlögð. Arinn er í stofunni. Svefnherbergisgangur er parketlagður. Innaf gangi eru þrjú parketlögð herbergi, baðherbergi og þvottahús. Skápar eru í barnaherbergjunum en innaf hjónaherbergi er fataherbergi. Úr hjónaherbergi er gengið út í garð. Þvottahúsð er með flísum á gólfi og góðri innréttingu. Úr þvottahúsi er gengið út á góðan afgirtan pall með heitum potti. Baðherbergið er rúmgott með stóru baðkari. Gólf er lagt marmara.
Glæsilegt eign á fallegum og eftirsóttum stað. Mjög rúmgott upphitað bílaplan er fyrir framan húisð.
Örstutt í skóla, sundlaug, íþróttahús, heilsurækt, verslanir og alla helstu þjónustu.
Einnig er örstutt í göngu- og hjólreiðastíga og á golfvöll.
NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA: Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali s: 861-8514 sverrir@eignamidlun.is eða Magnea S. Sverrisdóttir lögg. fasteignasali s. 861 8511 magnea@eignamidlun.isUpplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090 eða á netfanginu eignamidlun@eignamidlun.is
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 alla virka daga
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook