Eignamiðlun kynnir:
Breiðahvarf 10, 139.3 fm 3 herb. íbúð/hús merkt 01-01. Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 206-6601, nánar tiltekið eign merkt 01-01, birt heildarstærð 139.3. Þar af er einbýlishús skráð 98,2 fm og aukahús, nánar tiltekið eign merkt 02-0101 skráð 41,1 fm.
Aðaleignin skiptist í:Forstofu/hol, 2 svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús og baðherbergi.
Aukaeign - nánar tiltekið eign merkt 02-0101 skiptist í: Svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús og baðherbergi.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlitNánari lýsing eignarinnar:Um er að ræða Leigulóðir við Breiðahvarf 10, Kópavogi sem er um 2500fm. Glæsilegt útsýni er yfir Elliðavatn og til fjalla.
Á lóðinni stendur einbýlishús sem var byggt 1995, skráð 98,2fm, merkt 01-0101 ásamt auka húsi, skráð 41,1 fm merkt 02-0101. Heildarstærð er skráð 139,3 fm. Einnig er geymsluhús á lóðinni með hitaveitu og
lítið gróðurhús sem er tengt við aukahús.
Samkvæmt deiliskipulagi getur lóðarhafi óskað eftir því að skipta lóðinni í tvær lóðir. Núverandi hús er nr.10 við Breiðahvarf og er endurbyggingaréttur á lóðinni fyrir einbýlishús á tveimur hæðum. Á hinni útskiptu lóð sem verður nr.12 við Breiðahvarf má einnig byggja einbýlishús á tveimur hæðum.
Einbýli:Gengið er inn í flísalagða forstofu með skápum, þegar gengið er áfram úr forstofu eru svefnherbergi hússins til hægri og vinstri. Parket á gólfum og góðir fataskápar í hjónaherbergi. Baðið er áfram til hægri, flísalagt í hólf og gólf með góðum innréttingum og sturtuklefa. Gengið er áfram í alrými íbúðar þar sem er rúmgóð stofa/borðstofa og eldhús með góðum innréttingum. Parket á gólfum. Þvottahús er innaf eldhúsi, útgengt á rúmgóðan sólpall úr þvottahúsi og stofu.
Heitur pottur er á pallinum.
Aukahús:Gengið er inn í forstofu, til vinstri er svefnherbergi þar sem baðherbergi m/sturtu, handlaug og stæði fyrir þvottavél er innaf því. Til hægri er stofa/borðstofa. Til vinstri frá stofunni er eldhús. Parket er á gólfum fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt. Gróðurhús tengt við húsið.
Nánari upplýsingar veitir Alexander Ingi Kristjánsson löggiltur fasteignasali, í síma 695 7700, tölvupóstur alexander@eignamidlun.is og Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali, tölvupóstur sverrir@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090Upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090 eða á netfanginu eignamidlun@eignamidlun.is
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 alla virka daga
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook