Orkureitur a íbúð 106 0, 108 Reykjavík (Austurbær)

79.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 80 m2
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 0
  • Lyfta
  • Brunabótamat 0
  • Fasteignamat 6.690.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Dalsmúli 3,íbúð 01-06 er 3 herbergja, 80.7 fm íbúð á 1.hæð í lyftuhúsi. 
Rut Kára stýrir fágaðri hönnun innréttinga íbúða ásamt því að leggja línuna fyrir öll sameiginleg rými svo úr verður heildarmynd byggingar sem er engu lík. Rut Kára hefur lag á því að skapa heim sem við viljum búa í.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Þórarinn M. Friðgeirsson, Löggiltur fasteignasali  í síma 899-1882, [email protected]
Eignamiðlun og Safír byggingar ehf kynna nýjar eignir við Dalsmúla 1-3 í glæsilegu lyftuhúsi á Orkureitnum, sannkölluðum sælureit við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna.  
*Heimasíða verkefnisins*
*Hér færðu söluyfirlit*


Dalsmúli 3, íbúð 01-06 er 80.7 fm 3 herb.íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á einstaklega góðum stað rétt við Laugardalinn. 
Opinber skráning eignarinnar: Birt flatarmál er 80.7 fm, með geymslu í sameign. Innréttingaþema í íbúðinni er: Rut 3
Afhending íbúðanna: Gert er ráð fyrir að afhending fyrstu íbúða í Dalsmúla 1-3 verði haustið 2024
Nánar um orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir

Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Áformað er að afhenda fyrstu íbúðir haustið 2024 og að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Framtíðarheimili á Orkureitnum
Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Kerfið endurvinnur varma upp að 85%, nýtir varma úr útsogslofti og hitar ferskt loft sem dælt er inn. Allt loft sem fer í gegnum kerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella. Hægt er að stýra
kerfinu á bæði einfaldan máta á vegg eða með appi í snjallsíma.


Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.
Nánari upplýsingar gefa löggiltir fasteignasalar Eignamiðlunar. 
Þórarinn M. Friðgeirsson lögg fs sími 899-1882, [email protected]
Gunnar Bergmann Jónsson lögg fs sími 839-1600, [email protected]
Ólafur H Guðgeirsson lögg fs sími 663-2508, [email protected]
Kári Sighvatsson lögg fs sími 899-8815, [email protected]
Oddný María Kristinsdóttir lögg fs sími 777-3711, [email protected]
Ingimar Óskar Másson lögg fs sími 612-2277, [email protected]
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson lögg fs sími 864-5464, [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook