Dunhagi 20, 107 Reykjavík (Vesturbær)

99.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 76 m2
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameiginlegur
  • Byggingaár 1959
  • Lyfta
  • Brunabótamat 39.650.000
  • Fasteignamat 66.450.000
  • Áhvílandi 0
Opið hús: 15. september 2024 kl. 15:45 til 16:15.

Opið hús: Dunhagi 20, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 04. Eignin verður sýnd sunnudaginn 15. september 2024 milli kl. 15:45 og kl. 16:15. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali s. 8998815, [email protected]

Eignamiðlun kynnir:

Frábær 2-3ja herbergja endaíbúð á 4. hæð (efstu) með stórbrotnu útsýni. Suðaustur svalir. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. Lyfta er í húsinu. 

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, [email protected] 

*** Sækja söluyfirlit *** 

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 404 við Dunhaga 20, 107 Reykjavík, F2523159. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 76,5 fm. Þar af er íbúðarrými 67,6 fm og geymsla í kjallara hússins er 8,9 fm. Íbúðin skiptist í eldhús, stofu/borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi. Mögulegt er að stúka af annað svefnherbergi og minnka stofu. Sérgeymsla sem tilheyrir íbúðinni er í kjallara hússins. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara hússins. Húsið, sem er byggt árið 1978, hefur fengið mikið viðhald á síðustu árum.

Nánari lýsing:
Eldhús er með snyrtilegri L-innréttingu, innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Parket á gólfi. 
Stofa/borðstofa er björt og með sérstaklega fallegu útsýni. Parket á gólfi. Útgengt á suðaustur svalir. 
Svefnherbergi er með skápum, parket á gólfi. Útgengt á suðaustur svalir. 
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu með neðri skápum, speglaskáp (efri), handlaug, sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni. Flísar í hólf og gólf. Það væri mögulegt að hafa þvottavél á baðherberginu. 
Sérgeymsla (8,9 fm) er í kjallara hússins. 
Hjólageymsla er í kjallara hússins. 
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara hússins.

Húsið Dunhagi 18-20 var upphaflega byggt árið 1959 en endurbyggt og stækkað (4. hæð byggð ofan á) árið 2022. Byggingarár hússins opinberlega skráð í Fasteignaskrá 1959 en 4. hæðin var byggð ofan á húsið og er öll ný. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook