Birkiholt 4, 225 Garðabær

66.900.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 94 m2
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2003
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 41.250.000
  • Fasteignamat 62.150.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Falleg 3ja herbergja endaíbúð á þriðju og efstu hæð á fjölskylduvænum stað á Álftanesi. Sérinngangur af opnum svalagangi. Íbúðin er staðsett við leik- og grunnskóla, sundlaug og íþróttasvæði. Birt stærð íbúðarrýmisins er 87,3 fm og geymslunnar 7,6 fm, samtals 94,9 fm.

Eignin skiptist í: forstofu, tvö svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, eldhús og stofu í opnu rými.  
 Smelltu hér til að fá söluyfirlit strax: 
Nánari lýsing: gengið er upp stiga upp á efstu hæð. Þaðan liggur opinn svalagangur að íbúðinni, sem er endaíbúð. Komið er inn í flísalagða forstofu sem er með fataskáp. Tvö svefnherbergi eru hlið við hlið, bæði eru parketlögð og hjónaherbergið er með góðum fataskápum. Þvottahúsið er flísalagt með stæði og tengi fyrir þvottavél, rýmið er gluggalaust. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, það er með innréttingu og sturtuklefa. Eldhúsið og stofan eru í opnu rými. Eldhúsið er með U-laga innréttingu, neðri skápum og efri að hluta, flísar á milli skápa. Stofan er stór og björt og úr henni er gengið út á svalir.

Sérgeymsla í kjallara. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook