Eignamiðlun kynnir:
Mikið endurnýjað 177 fm raðhús á tveimur hæðum með stórum suðurpalli. Bílskúr með gryfju. Nýlegt þak, nýlegur þakkantur og rennur, nýlegir gluggar, nýlegar hurðar,( inni, svala og útidyrahurð). Nýlegt harðparket á efri hæð og nýleg borðplata í eldhúsi. Þá er búið að mynda og yfirfara frárennsli.Nánari lýsing:Neðri hæð:Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Á vinstri hönd er rúmgott forstofuherbergi með parketflísum og fataherbergi innaf. Frá forstofu er komið inn á flísalagða stofu og eldhús sem er bjart og fallegt og með gluggum til suðurs. Eldhúsinnrétting er með nýlegri borðplötu og stórri gaseldavél. Þvottahús inn af eldhúsi. Stofan er rúmgóð og á tveimur pöllum. Frá neðri stofu er gengið út á stóran timburverönd til suður sem er yfirbyggð að hluta. Á hæðinni er flísalagt salerni með innréttingu.
Efri hæð:Efri hæðin er með nýlegu parketi. Gengið er upp stiga og á hægri hönd er herbergi/sjónvarpsrými í opnu rými, (gæti verið herbergi). Frá rýminu er hurð af stóru geymslurými undir súð. Tvö barnaherbergi eru á hæðinni með gluggum til suðurs. Rúmgott hjónaherbergi með hurð út á suðursvalir. Fataherbergi er inn af hjónaherberginu. Flísalagt baðherbergi er á hæðinni með innréttingu og sturtu.
Nánari lýsing eignarinnar:veita Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur
[email protected] og Daði Hafþórsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9096, tölvupóstur
[email protected] og eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook