Dýjagata 12, 210 Garðabær

465.000.000 kr.
  • Tegund Einbýli
  • Stærð 505 m2
  • Herbergi 7
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 5
  • Baðherbergi 4
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2020
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 271.350.000
  • Fasteignamat 240.100.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Glæsilegt 505 m2 einbýli í sérflokki á útsýnislóð neðst við Urriðavatn í Garðabæ. Óhindrað útsýni yfir Heiðmörk og Urriðavatn. Lóðin er alls 1486 m2. Arkitektar hússins eru Skala arkitektar og Guðbjörg Magnúsdóttir innanhússarkitekt sá um innanhússhönnun.

Nánari lýsing:  Gengið er inn um aðalinngang í anddyri með aukinni lofthæð. Í anddyri er sérsmíðaður fataskápur ásamt sérsmíðaðri innréttingu. Gestabaðherbergi er inn af anddyri. Gestabaðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og er sturturými klætt marmara. Öll blöndunartæki eru frá Vola. Mjög rúmgóður tvöfaldur bílskúr. Inn af bílskúr er auka anddyri með skápum, geymsla og lagnarými. Frá anddyri er gengið inn gang með stórum þakglugga. Gangveggurinn til vinstri er allur klæddur sérsmíðaðri viðarklæðningu og eru hurðar inn í gestabaðherbergi og þvottahús innfelldar viðarhurðir. Til vinstri af gangi er gengið inn í hol með skrifstofu og sjónvarpsherbergi. Þvottahús er á hæðinni með sérsmíðaðri innréttingu. Í beinu framhaldi af gangi er gengið inn í mjög rúmgott tæplega 100 m2 alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhús er glæslegt með stórri innréttingu. Í alrými og anddyri er Rockfon Mono hljóðloft frá Parka. Þriggja metra háir álgluggar með óhindruðu útsýni yfir Heiðmörk og Urriðavatn. Úr alrými er útengi á tæplega 80 m2 svalir. Inn af alrými er gengið til hægri inn í rúmgóða hjónasvítu með baðherbergi og fataherbergi. Í fataherbergi eru sérsmíðaðar innréttingar í hólf og gólf.  Úr hjónaherbergi og baðherbergi er óhindrað útsýni út á vatnið. Gengið er niður stiga inn í tómstundarými með útgengi út í garð. Á hægri hönd eru tvö stór svefnherbergi ásamt geymslu og baðherbergi. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og öll blöndunartæki frá Vola. Sérinngangur er inn á neðri hæð. Á neðri hæð er einnig stór geymsla með sérinngangi að utan. Á neðri hæð er einnig 2ja herbergja u.þ.b. 70 m2 fullbúin íbúð með sérinngangi. Sérsmíðaðar innréttingar eru í allri íbúðinni. Hægt er að opna inní húsið með auðveldum hætti þannig að íbúðin sé hluti af húsinu. 

Húsið er staðsteypt og er einangrað að utan með læstri svartri álklæðningu. Allir gluggar og hurðir eru úr áli og eru frá þýska framleiðandanum Schüco. Á gólfum eru ítalskar Coem flísar frá Ebson. Á svefnherbergjum er niðurlímt parket. Lýsingarhönnun í öllu húsinu er frá Lumex og öll ljós eru frá ítalska framleiðandanum FLOS. Öll blöndunartæki eru frá VOLA. Öll eldhústæki eru frá Miele og Liebherr. Allar innréttingar í húsinu eru sérsmíðaðar. Steinn/marmari á öllum borðum.
Afar vönduð eign á einstakri útsýnislóð

Nánari upplýsingar gefur Guðlaugur Ingi Guðlaugsson lögg.fasteignasali í síma 864-5464 eða [email protected].

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook