Heklureitur - laugavegur 168 (801) 0, 105 Reykjavík (Austurbær)

340.000.000 kr.
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 208 m2
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 3
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 0
  • Lyfta
  • Brunabótamat 0
  • Fasteignamat 0
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Glæsileg 208,7 fm horníbúð á besta stað á efstu hæðinni. Einstaklega rúmgóð íbúð með tvennum þaksvölum þar sem gert er ráð fyrir heitum potti með óheftu útsýni yfir borgina til vesturs. Aðrar þaksvalir til suðurs út frá alrýminu. Inn af eldhúsi er búr og gert er ráð fyrir að hægt sé að koma fyrir arni í stofunni. Í íbúðinni er glæsileg hjónasvíta og að auki annað herbergi með sér baði og fataherbergi. Sér þvottahús auk gestasnyrtingar. Tvö stæði í bílageymslu.

**Sækja söluyfirlit**

**Sækja kynningarbækling**


Opinber skráning eignar: 
Íbúð merkt 08-01 við Laugaveg 168, 105 Reykjavík. Fastanúmer eignar: 252-9812. Birt flatarmál er 208,7 fm með sérgeymslu í sameign. Stæði í bílageymslu merkt 0B-01 og 0B-02 fylgja íbúðinni sem og þaksvalir.

Hönnun:
Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum og einnig verða vélræn loftskipti í þeim sem tryggir aukin loftgæði. Hafstudio og Studio Homestead komu að hönnun innréttingannna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra og munu kaupendur hafa tækfæri á að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergjum. Íbúðirnar hafa einstakt útsýni til fjallahringsins og yfir borgina.

Í eldhúsinu verður eyjan, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini sem er sérframleiddur á Ítalíu frá Santamargherita. Íbúðirnar eru búnar stórglæsilegum og vönduðum tækjum frá Siemens. Þau koma úr studioLine línunni sem að býður úrval glæsilegra tækja sem gera matreiðsluna sérlega þægilega og ánægjuríka. Úrvalstæki þar sem gott jafnvægi ríkir á milli nýjunga og stílhreinnar hönnunar sem er óháð tíð og tíma. Á baðherbergjum verða blöndunartækin innbyggð með gun metal lit. Quartz borðplata á baðinnréttingu. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða bað eru valin með tilliti til gæða og endingar.

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

Afhending miðast við september 2025

Nánari upplýsingar veita fasteignasalar Eignamiðlunar:
Kjartan Hallgeirsson 824-9093 [email protected]
Kári Sighvatsson 899-8815 [email protected]
Gunnar Bergmann Jónsson 839-1600 [email protected]
Brynjar Þ. Sumarliðason 896-1168 [email protected]
Rögnvaldur Örn Jónsson 660-3452 [email protected]
Unnar Kjartansson 867-0968 [email protected] 
Lilja Guðmundsdóttir 649-3868 [email protected]:
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook