Stigahlíð 52, 105 Reykjavík (Austurbær)

0 kr.
  • Tegund Einbýli
  • Stærð 296 m2
  • Herbergi 8
  • Stofur 4
  • Svefnherbergi 5
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1984
  • Lyfta Nei
  • Brunabótamat 139.650.000
  • Fasteignamat 189.900.000
  • Áhvílandi 0

Eignamiðlun kynnir:

Rúmgott 296,3 fm einbýlishús á eignarlóð á vinsælum stað við Stigahlíð 52 í 105 Reykjavík. Húsið hefur nýlega verið málað að utan og gler og gluggar viðgerðið víða.

**Sækja söluyfirlit**

Bókið skoðun:
Lilja s. 649-3868 eða [email protected]
Kjartan s. 824-9093 eða [email protected]
 

Eignin skiptist í tvöfaldan bílskúr, forstofu, eldhús, stofu, borðstofu og sjónvarpsherbergi, fimm svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, geymslur, sólstofu og glæsilegan garð. Stutt í alla þjónustu, grunn- og menntaskóla, leikskóla og verslanir. Gróin og skjólgóð lóð með timburverönd, hiti í tröppum og plani með bílastæði fyrir þrjá bíla á 863 fm eignarlóð.

Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð með stórum fataskápum með speglum. Gólfhiti og marmari á gólfi.
Gestasnyrting: Með innréttingu, stórum spegli og glæsilegum marmara.
Þvottahús: Rúmgott með skápum og útgengi út í garð. Flísar á gólfum. Geymsla innaf. Sorprenna við bakinngang að þvottahúsi.
Eldhús: Með hvítri innréttingu og á gólfi er gegnheilt eikarparket.
Borðstofa: Rúmgóð borðstofa samtengd eldhúsi og stofu.
Stofa: Mjög rúmgóð stofa með fallegu parketi og útgengi út í skjólríkan garð.
Sjónvarpsherbergi er tengt við sólstofu sem er flísalögð og þaðan er einnig útgengi í garðinn.
Eitt svefnherbergi er á aðalhæðinni sem er í dag nýtt sem skrifstofa. Arinn er í stofunni. Arinn er með öryggisgleri og viftu við stromp.
Gengið upp rúmgóðan stiga með stórum gluggum og mikilli lofthæð upp á efri hæð. 
Svefnherbergi 1: Aðalsvefnherbergið er með fataherbergi og útgengi út á sólríkar svalir. Parket á gólfum.
Svefnherbergi 2: Svefnherbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Svefnherbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Svefnherbergi án fataskáps. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Innrétting. Baðkar og sturtuklefi. Tveir opnanlegir gluggar eru á baðherberginu. 
Talkerfi (intercom) er í húsinu. 
Bílskúr er rúmgóður með heitu og köldu vatni. Bílskúrshurðaopnarar. Gluggar. Innaf bílskúr eru tvær geymslur. Hellulagt plan og tröppur með snjóbræðslukerfi.
Grunn- og framhaldsskólar eru í göngufæri (Hlíðaskóli, Verzlunarskóli Íslands og Menntaskólinn við Hamrahlíð), útivistarsvæði við Perlu í Öskjuhlíð sem og verslanir og önnur þjónusta í Kringlu og Suðurveri.
Húsið hefur nýlega verið málað að utan (bæði múr og tréverk). Víða hefur verið gert við glugga, gler og gluggakarmar málaðir að innan.  

Fasteignamat 2024: kr. 189.900.000

Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson lögg. fasteignasali í síma 824-9093 eða á [email protected] 
Lilja Guðmundsdóttir lögg. fasteignasali í síma 649-3868 eða á [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook