FASTEIGNA­VIÐSKIPTI

Mánatún 7-17 105, Reykjavík
Glæsilegar nýjar íbúðir við Mánatún 7 - 17. Um er að ræða fullbúnar íbúðir án gólfefna. Allar íbúðirnar eru með sér stæði í bílgeymslu. Húsin eru hönnuð af Kanon arkitektum og vekur athygli fyrir gott skipulag og nútímalegt útlit. Allur frágangur er sérlega vandaður. Aðkoman er þægileg, rúmgóð bílastæði. Stutt er í alla þjónustu og afþreyingu. Lagður er metnaður í faglegan frágang bygginganna. Verkfræðistofan Efla sér um verkfræðihönnun og tengda ráðgjöf. Öll lýsing er hönnuð af Lumex. Sameign: Sameign er fullfrágengin með mynddyrasíma í aðalanddyri, teppalögð gólf í stigahúsi og flísar (hálkufríar) á anddyrisgólfum. Bílageymsla: Eitt til þrjú sérmerkt bílastæði fylgja hverri íbúð í rúmgóðum bílakjallara sambyggðum húsinu. Ef kaupandi óskar eftir fleiri bílastæðum, er hægt að semja um það sérstaklega.
Frekar upplýsingar hér Úrval íbúða og á kynningarvefnum www.manatunid.is

Skilalýsing  Allar teikningar á pdf formi 

til baka